• default color
  • blue color
  • orange color
  • green color
JA Control Panel

Samtökin 78

  • Increase font size
  • Default font size
  • Decrease font size

Félagslög

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

1. HEITI OG HLUTVERK 

1.1. Félagið heitir Samtökin ´78 - félag hinsegin fólks á Íslandi, og hefur aðsetur í Reykjavík. Ensk þýðing félagsheitisins er Samtökin '78 - The National Queer Organization of Iceland.

1.2. Markmið félagsins er að lesbíur, hommar, tvíkynhneigðir og transgender fólk, hér eftir nefnd hinsegin fólk, verði sýnileg og viðurkennd og njóti fyllstu réttinda í íslensku samfélagi.

1.3. Markmiðum sínum hyggst félagið einkum ná með því:

  • að skapa hinsegin fólki félagslegan og menningarlegan vettvang og styrkja þannig sjálfsvitund þess, samkennd og samstöðu um sérkenni sín.
  • að vinna að baráttumálum hinsegin fólks, svo og fræðslu um reynslu þess og sérkenni, eftir þeim leiðum sem árangursríkastar þykja hverju sinni svo sem á vettvangi löggjafarvalds, í opinberu fræðslukerfi og í fjölmiðlum. 
  • að eiga samstarf við sambærileg samtök, hópa og áhugafólk hérlendis og erlendis sem stefna að sömu markmiðum; styðja önnur félagasamtök, sem vinna að mannréttindum, og afla stuðnings þeirra.

2.  FÉLAGSAÐILD – RÉTTINDI OG SKYLDUR 

2.1.  Félagi getur hver sem er gerst sem vill styðja félagið og vinna að markmiðum þess.

2.2.  Félagar fá félagsskírteini sem gildir á milli aðalfunda. Þeir einir teljast gildir félagar sem greitt hafa
félagsgjöld. Félagsfólki ber að tilkynna úrsögn úr félaginu skriflega til stjórnar.

2.3.  Stjórnin ber ábyrgð á félagaskrá sem einungis er til afnota fyrir stjórn og starfsfólk félagsins og eru þeir
bundnir þagnarskyldu um hana.

2.4. Félög tengd hagsmunum Samtakanna '78 geta óskað eftir því að tengjast félaginu. Stjórninni er skylt að leggja slíka umsókn fyrir aðalfund og geta hennar í fundarboði. Til samþykktar á slíkri aðild þarf einfaldan meirihluta atkvæða á aðalfundi. Hagsmunafélög skulu hafa eigin kennitölu, sjálfstæðan fjárhag og koma fram opinberlega í eigin nafni en ekki nafni Samtakanna '78.

2.5. Samþykkt hagsmunafélög eiga í sínu nafni rétt á tveimur fulltrúum með málfrelsi og tillögurétt á trúnaðaráðsfundum, enda séu þeirra talsmenn fullgildir félagar í Samtökunum '78.

3.  AÐALFUNDUR 

3.1. Aðalfundur fer með æðsta ákvörðunarvald félagsins. Hann skal halda í marsmánuði ár hvert. Dagsetningu fundarins skal auglýsa á vefsíðu félagsins og með tölvupósti eigi síðar en 15. janúar. Til fundarins skal svo boða bréflega með minnst tveggja vikna fyrirvara. Rétt til fundarsetu hafa einungis félagar með gilt félagsskírteini.

3.2.  Í nóvember skipar stjórn þriggja manna kjörnefnd. Nefndin skal lýsa eftir og vinna að því að framboð berist til kjörs stjórnar og tíu félagsmanna til að sitja í trúnaðarráði svo og félagslegra skoðunarmanna reikninga. Kjörnefnd skal leitast við að tryggja að jafnræði ríki hvað snertir aldur og kyn í hópi frambjóðenda. Framboðsfrestur rennur út hálfum mánuði fyrir aðalfund og skulu frambjóðendur skila framboði sínu skriflega til kjörnefndar og tilgreina hvaða embætti þeir sækjast eftir. Öll framboð til stjórnar og trúnaðarráðs skulu eftir það kynnt á vefsíðu félagsins.
3.3.  Við kjör stjórnar skal beita meirihlutakosningu, þannig að sá einstaklingur sem hlýtur flest atkvæði í viðkomandi embætti nær kjöri. Trúnaðarráð skal kosið meirihlutakosningu og er kosið á milli einstaklinga og má hver félagsmaður nota atkvæði sitt jafn oft og þeir eru margir sem kjósa skal.  Öllum félagsmönnum er heimilt að bjóða sig fram til stjórnar eða trúnaðarráðs, að því tilskildu að framboðið fullnægi öðrum skilyrðum laga þessara. Kosning til stjórnar og trúnaðarráðs skal vera skrifleg. Kjörnefnd dreifir kjörseðlum,  telur atkvæði og tilkynnir niðurstöður kosninga.

3.4. Dagskrá aðalfundar er:

1.   Skipan fundarstjóra og fundarritara
2.   Lögmæti aðalfundar staðfest
3.   Skýrsla stjórnar, nefnda og starfshópa
4.   Áritaðir reikningar fyrra árs kynntir og bornir upp til samþykktar
5.   Fjárhagsáætlun ársins lögð fram
6.   Laga- og stefnuskrárbreytingar
7.   Kjör formanns, varaformanns, ritara, gjaldkera og þriggja meðstjórnenda
8.   Kjör tíu félaga í trúnaðarráð
9.   Kjör tveggja skoðunarmanna reikninga
10. Önnur mál

3.5.  Aðalfundur telst lögmætur sæki hann 15 félagsmenn hið fæsta. Aðalfundi skal stjórnað samkvæmt fundarsköpum félagsins.

4.  STJÓRN

4.1.  Félagar kjósa árlega 7 manna stjórn á aðalfundi til að gegna embættum formanns, varaformanns, ritara, gjaldkera og þriggja meðstjórnenda.

4.2.  Stjórnin fer með umboð félagsins og ákvörðunarvald næst aðalfundi og félagsfundi og kemur fram fyrir hönd þess.

4.3.  Formaður er oddviti stjórnar og stýrir fundum hennar. Í samráði við stjórn ber hann ábyrgð á að starfsemi félagsins fari samkvæmt lögum. Varaformaður sinnir forystustörfum með formanni og gegnir störfum formanns í forföllum hans. Ritari sér um ritun fundargerða á stjórnarfundum. Gjaldkeri er ábyrgur fyrir fjárreiðum félagsins. Meðstjórnendur sinna öðrum verkum sem stjórn ákveður.

4.4.  Stjórnin skal halda minnst 10 stjórnarfundi á ári. Stjórnarfundir eru lögmætir ef 5 eru til staðar,
þar með taldir formaður eða varaformaður.

4.5.  Ef stjórnarmaður forfallast um stundarsakir eða hverfur úr stjórn á kjörtímabili skal stjórnin skipa staðgengil hans úr röðum kjörinna trúnaðarráðsmanna.

5.  SKIPULAG OG STARFSEMI 

5.1.  Félagsfundur fer með næstæðsta ákvörðunarvald félagsins. Á félagsfundum hefur sérhver félagi rétt til að flytja mál varðandi félagið. Rétt til fundarsetu hafa einungis félagar með gilt félagsskírteini. Halda skal fundargerð félagsfunda. Fundur telst lögmætur sé löglega til hans boðað. Félagsfundi skal stýrt samkvæmt fundarsköpum félagsins við afgreiðslu mála og í umræðum eftir því sem við á.

5.2. Stjórn skal boða til félagsfundar að vori og hausti og oftar ef þurfa þykir. Boða skal skriflega til félagsfunda með viku fyrirvara nema sérstakar aðstæður geri annað nauðsynlegt. Hið minnsta 15 félagar geta krafist þess að boðað sé til félagsfundar.

5.3.  Félagar kjósa árlega tíu manna trúnaðarráð og skal hlutverk þess vera fólgið í því að vera stjórn félagsins til ráðuneytis, einkum þegar fjallað er um stærri ákvarðanir, starfshætti eða ákvarðanir sem eru stefnumótandi fyrir félagið og að virkja fleiri félaga til starfa á vettvangi félagsins. Ákvörðunarvald er í höndum stjórnar og félagsfunda á milli aðalfunda. Stjórn skal kalla trúnaðarráð sama tvisvar á ári, eftir aðalfund  og aftur að hausti.

5.4.  Stjórn skal tryggja að fræðslu- og útgáfumálum sé sinnt og í því skyni getur hún skipað framkvæmdanefndir til að vinna verkefni á sviði útgáfu, skólafræðslu, fræðslu um HIV-smit, heilsuverndar og fleiri sviðum, allt eftir því sem efni og aðstæður leyfa og krefja hverju sinni.

5.5.  Stjórnin skal hafa forystu um að skapa félögum vettvang í því skyni að rækta félagslíf sitt, m.a. með rekstri félagsmiðstöðvar. Félagar skulu ætíð eiga aðgang að safni bóka, tímarita og kvikmynda í eigu félagsins.

5.6.  Allir félagar geta stofnað starfshópa um málefni og áhugamál sín, enda brjóti tilgangur þeirra ekki í bága við markmið félagsins. Tilkynna ber stofnun hóps skriflega til stjórnar, enda eigi talsmenn þeirra alla jafnan fulltrúa með málfrelsi og tillögurétt á stjórnarfundum þegar fjallað er um málefni sem þeim tengjast. Rísi ágreiningur um stofnun og starfsemi hópa skal skjóta málinu til félagsfundar. Hópar skila árlega starfsskýrslu til stjórnar og geta sótt um styrki til hennar vegna starfsemi sinnar.

5.7.  Stjórnin hefur umboð til að skipa launað starfsfólk, þar á meðal stjórnarliða. Hefðbundin stjórnarstörf skulu vera ólaunuð.

6.  FJÁRMÁL 

6.1.  Félagsgjöld samkvæmt ákvörðun stjórnar skulu innheimt í upphafi árs. Félagar yngri en 24 ára og lífeyrisþegar greiða lægra félagsgjald, svo og aðrir hópar, samkvæmt nánari ákvörðun stjórnar.

6.2.  Aðgangseyrir og annað endurgjald til félagsins skal ævinlega vera lægra gegn framvísun félagsskírteinis en annars. Félagsréttindi eru háð því að félagsgjöld séu greidd.

6.3.  Gjaldkeri hefur eftirlit með innheimtu tekna félagsins. Allar fjármunahreyfingar fara fram á bankareikningum Samtakanna´78 sem gjaldkeri gerir grein fyrir í ársreikningum. Reikningsár félagsins er almanaksárið.

6.4.  Stjórn skal kynna drög að fjárhagsáætlun á félagsfundi í nóvember. Aðalfundur tekur fjárhagsáætlun til meðferðar, sbr. grein 3.4.

7.  LAGABREYTINGAR OG FÉLAGSSLIT 

7.1.  Tillögur að lagabreytingum skulu hafa borist stjórn félagsins mánuði fyrir aðalfund. Þær skulu síðan kynntar bréflega fyrir félögum minnst hálfum mánuði fyrir aðalfund. Undanþegnar þessum skilafresti eru tillögur sem lúta að orðalagi og formi en breyta á engan hátt efnislegu innihaldi áður framkominna tillagna. Lögum þessum verður ekki breytt nema með samþykkt á aðalfundi og þá með 2/3 hlutum greiddra atkvæða.

7.2.  Félagið verður ekki lagt niður nema með samþykkt á aðalfundi sem hlotið hefur sömu meðferð og tillögur að lagabreytingum og þá með 2/3 hlutum greiddra atkvæða. Atkvæðagreiðsla skal vera skrifleg. Ber þá að eyða félagaskránni, en önnur gögn og eignir félagsins renna til skyldra félagasamtaka, þó ekki fyrr en eitt ár er liðið frá aðalfundi.

___

Samþykkt á aðalfundi Samtakanna '78 14. mars 2009

 

Vissir þú?

Vissir þú að á bókasafninu er fjöldi bóka og DVD diska. Opið öll mánudags- og fimmtudagskvöld.


buy viagra |