• default color
  • blue color
  • orange color
  • green color
JA Control Panel

Samtökin 78

  • Increase font size
  • Default font size
  • Decrease font size

Bókasafn

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Bókasafn Samtakanna ´78 er opið alla virka daga frá 10.00-16.00 og mánudags- og fimmtudagskvöld frá 20.00-23.00. Safnið geymir mikið og fjölbreytt efni sem varðar líf, sögu og menningu samkynhneigðra og tvíkynhneigðra – bækur, tímarit, fræðiritgerðir, blaðaúrklippur og kvikmyndir. Hvergi hér á landi er jafn mikill safnkostur saman kominn um þau málefni, og reyndar er safnið af mörgum talið með þeim merkari sinnar tegundar í Evrópu. Um 40% af bókakostinum eru fræðibækur en 60% skáldskapur.

Megnið af bókunum er á ensku, en nokkuð á Norðurlandamálum. Bókavörður er Jón Sævar Baldvinsson, bókasafnsfræðingur og hægt er að skrifa honum til að fá upplýsingar um það sem safnið varðar. Bókasafnið er opið öllum almenningi og safnkostur þess er skráður á Landsgrunn bókasafna, Gegni.

Bókasafnið hefur það að markmiði að auðvelda öllum almenningi aðgang að útgáfuefni sem tengist menningu samkynhneigðra, tvíkynhneigðra og transgender fólks. Lögð er sérstök áhersla á að mæta óskum um efni sem varðar reynslu þeirra, líf og sögu hinsegin fólks, en jafnframt er leitast við að þjóna fræðimönnum og nemendum sem vinna að rannsóknum á háskólastigi. Safnið sinnir millisafnalánum.

Opnunartími:
Alla virka daga 10.00-16.00
Mánudagskvöld og fimmtudagskvöld kl. 20.00–23.00.

Frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Samtakanna '78 í síma 552 7878. Einnig er hægt að senda fyrirspurn á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 

Vissir þú?

Vissir þú að á bókasafninu er fjöldi bóka og DVD diska. Opið öll mánudags- og fimmtudagskvöld.


buy viagra |