Að vera samkynhneigð, tvíkynhneigð eða transgender manneskja og þekkja enga aðra í sömu sporum getur verið erfitt og hundleiðinlegt! Í Samtökunum ’78 gefst þér tækifæri til að kynnast skemmtilegu fólki sem deilir samskonar reynslu og þú sjálf/sjálfur.
Bókasafn og félagsmiðstöð
Samtökin´78 reka menningar- og þjónustumiðstöð á Laugavegi 3 í Reykjavík, 4. hæð, sem er öllum opin. Félagsmiðstöð er einnig heimili fjölmargra starfs- og stuðningshópa sem starfa á vettvangi félagsins svo allir eiga að geta fundið sér eitthvað við hæfi. Í Samtökunum '78 er rekið bókasafn sem er opið mánudagskvöld og fimmtudagskvöld kl. 20.00–23.00. Eins er safnið opið á þeim tíma sem skrifstofa félagsins er opin, þ.e.a.s. frá kl. 13:30 - 17:30 mánudaga til föstudaga.
Á bókasafninu er fjölbreytt úrval bóka, tímarita, myndbanda og DVD-diska á ensku. Opið hús er í félagsmiðstöð Samtakanna '78 öll mánudags- og fimmtudagskvöld frá 20.00 - 23.00 Þar er hægt að fá sér kaffibolla og lesa tímarit í notalegu umhverfi í góðum félagsskap.
Fræðsla
Samtökin ´78 bjóða upp á fjölbreytta fræðslu til nemenda og starfsfólks skóla, starfsfólk heilbrigðisstétta og atvinnulífið. Fyrirkomulag og lengd fræðslunnar er mismunandi eftir áherslum hverju sinni en yfirliett er um að ræða um klukkustundar langa fundi.
Félagsráðgjöf
Hægt er að panta tíma hjá ráðgjafa en hjá Samtökunum ’78 starfa félagsráðgjafar sem hafa mikla reynslu í því að ræða við samkynhneigða og aðstandendur þeirra. Boðið er upp á klukkutíma viðtal í 2-3 skipti í senn og eru viðtölin ókeypis. Öll viðtöl og persónuleg símtöl eru trúnaðarmál. Aðstandendum samkynhneigðra stendur þessi þjónusta líka til boða.Frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Samtakanna '78 í síma 552 7878. Einnig er hægt að senda fyrirspurn á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
| < Fyrri | Næsta > |
|---|










