• default color
  • blue color
  • orange color
  • green color
JA Control Panel

Samtökin 78

  • Increase font size
  • Default font size
  • Decrease font size

Verndarvættirnar

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Verndarvættirnar eru samstarfsvettvangur félaga í Amnesty International og Samtökunum '78 um aðgerðir í málefnum er varða mannréttindi samkynhneigðra, tvíkynhneigðra og transgender fólks.

Þrátt fyrir að STT-fólk á Íslandi búi almennt við frekar góða stöðu í dag eiga þessir hópar verulega undir högg að sækja í daglegu lífi víða um heim. Má þar nefna mismunun af ýmsu tagi, ofbeldi og jafnvel hatursmorð. Svo rammt kveður að misréttinu að í mörgum tilfellum eru það jafnvel stjórnvöld hinna ýmsu ríkja sem standa beint eða óbeint fyrir meiriháttar mannréttindabrotum, þar á meðal fangelsunum, ofbeldi, pyntingum og jafnvel aftökum.

Þess vegna er aðaláhersla Verndarvættanna á aðgerðir í alþjóðlegu samhengi til að sporna við þessum glæpum. Í því augnamiði mun hópurinn fylgjast með mannréttindabrotum og beita sér, bæði í eigin nafni sem og þeirra samtaka sem að baki standa, þegar við á. Einnig er meiningin að ná til íslenskra stjórnvalda og brýna þau og hvetja til aðgerða á alþjóðavettvangi.

Starfsemi Verndarvættanna er opin öllum þeim sem hafa áhuga, vilja taka þátt í skemmtilegu og gefandi starfi og leggja sitt lóð á vogarskálar bættra mannréttinda og betri heims. Upplýsingar um fundi má sjá á tilkynningahluta heimasíðu Samtakanna '78. Einnig er hægt að nálgast frekari upplýsingar hjá Hilmari Magnússyni meðstjórnanda/alþjóðafulltrúa í stjórn Samtakanna '78.

 
Borði

Fréttabréf

Karlar í Samtökunum 78
Konur í Samtökunum 78


Receive HTML?


Vissir þú?

Vissir þú að á bókasafninu er fjöldi bóka og DVD diska. Opið öll mánudags- og fimmtudagskvöld.


buy viagra |