Hér geturðu boðið þig fram í stjórn, tilnefnt einstakling í stjórn og svo skoðað þau sem hafa nú þegar boðið sig fram. Einnig geturðu sent inn lagabreytingatillögur og umsókn um hagsmunaðild. Öll framboð og tillögur birtast svo hér þegar frestur er liðinn.
Aðalfundur Samtakanna ’78
21. mars, 2025 kl. 17:00
Dagskrá aðalfundar og önnur gögn
Í ár munu Samtökin ’78 fagna aðalfundi sínum af miklum krafti. Hefðbundin aðalfundardagskrá fer fram föstudaginn 21. mars. Dagskrá aðalfundar má nálgast hér að neðan. Aðalfundurinn 2025 verður haldinn í Sykursalnum í Grósku.

Spurt & Svarað
Hvað er aðalfundur?
Aðalfundur er æðsta vald og stofnun Samtakanna ’78, með öðrum orðum þá er aðalfundur sá vettvangur þar sem allt er ákveðið í Samtökunum ’78. Á aðalfundi er kjörin stjórn og félagaráð, ásamt því að fara yfir fjárhag félagsins og ræða öll mál. Einnig er samþykktum (lögum) félagsins aðeins breytt á aðalfundi.
Hvenær er aðalfundur?
Föstudaginn 21. mars, 2025 klukkan 17.
Hvernig kýs ég?
Í ár verður hægt að kjósa rafrænt og á pappír. Til að kjósa rafrænt þarft þú að vera með rafræn skilríki. Mikilvægt er að skrá sig í félagið og greiða félagsgjöld fyrir 19. mars kl. 17 (tveir sólarhringar fyrir aðalfund) því þá lokar kjörskrá. Einungis þau sem eru á kjörskrá geta kosið.
Á þessum vef verður linkur á kosningasíðu, en hægt er að kjósa frá því að kjörskrá lokar og alveg fram að dagskrárlið um kosningar á fundinum sjálfum. Ef þú kemst ekki á fundinn þá er öruggast að greiða atkvæði áður en fundur hefst.
Til að komast á kjörskrá:
- Skrá sig í félagið fyrir 19. mars kl. 17
- Greiða félagsgjöld fyrir 19. mars kl. 17
Til að kjósa rafrænt:
- Hægt er að kjósa frá því að kjörskrá lokar
- Smellir á tengil sem má finna efst á þessari síðu (birtist þegar nær dregur fundi)
- Kýst eftir leiðbeiningum á kosningavef
Athugið! Mikilvægt er að fylgja leiðbeiningum á kosningavef sem opnar um leið og kjörskrá lokar.
Til að kjósa á pappír:
- Mætir með skilríki og félagsskírteini.
- Kosning er opin á skrifstofu Samtakanna ’78 fimmtudag 20.mars kl. 13-16 og föstudag 21. mars milli 13-15.
- Einnig er hægt að kjósa á pappír rétt fyrir aðalfund í Sykursal milli kl. 15.30-17.15
Hvar er aðalfundur?
Aðalfundurinn 21. mars nk. verður haldinn í Grósku, Bjargargötu 1, 102 Reykjavík (kort) nánar tiltekið í Sykursalnum.
Er skylda að mæta á aðalfund?
Vissulega er það ekki lagaleg skylda en mögulega lýðræðisleg. Mjög gott er að mæta og eru allir félagar innilega hvattir til að sækja aðalfund.
Má hver sem er mæta á aðalfund?
Nei, því miður ekki. Aðalfundur er vettvangur fyrir skráða félaga Samtakanna ’78 sem hafa greitt félagsgjöld. Ef þú ert ekki viss um hvort þú sért skráður félagi, endilega hafðu samband á skrifstofa@samtokin78.is
Hvenær þarf ég að greiða félagsgjöld?
Fyrir fundinn. Félagsgjöld voru send út í heimabanka þinn 09. janúar 2025. Til að kjósa þarftu að greiða áður en kjörskrá lokar, sem er miðvikudaginn 19. mars kl. 17.
Ég er í félaginu en ekki með félagsskírteini. Af hverju ekki?
Félagsskírteini Samtakanna ’78 eru rafræn. Líklegasta skýringin á því að þú ert ekki með félagsskírteini er sú að mögulega er tölvupóstfang þitt ekki uppfært í félagatali Samtakanna ’78. Þú getur reddað því hér.
Ég er með reikning í heimabanka en vil greiða annað gjald. Er það mögulegt?
Algjörlega. Þrjú gjöld eru í boði og er það félaga algjörlega frjálst að velja hvað sem er. Uppfærðu félagsgjöldin þín hér.
Félaganúmerin eru komin aftur, mig langar í mitt gamla númer. Er það hægt?
Svo sannarlega er það hægt, svo lengi sem einhver er ekki komin/nn/ð með það númer. En þetta græjarðu hér.
Ég kemst ekki á fundinn, get ég kosið fyrr?
Heldur betur! Rafræn kosning opnar miðvikudaginn 19.mars og stendur til föstudags 21.mars kl. 17. og hægt verður að kjósa á pappír á skrifstofu Samtakanna fimmtudaginn 20. mars milli klukkan 13 og 16 & föstudaginn 21.mars milli klukkan 13 og 15.00. Ef þú ert að koma lengra að verðum við með í boði að kjósa í Sykursal milli 15.30 og 17, rétt fyrir aðalfund. Athugaðu að þú þarft að hafa skráð þig í félagið og greitt fyrir 19.mars kl. 17 til að hafa kosningarétt.
Hvernig er aðgengi í Sykursalnum?
Sykursalurinn er á jarðhæð og fullt aðgengi er fyrir hjólastóla að rýminu.
Þarftu táknmálstúlkun? Í ár verður sá háttur á að þau sem óska eftir táknmálstúlk hafa samband sjálf við Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra. Samskiptamiðstöð sendir svo reikning beint á Samtökin ’78.