Aðalsíða Samtakanna '78

Sjálfboðaliðatorg

Hér geta skráðir sjálfboðaliðar skoðað þau verkefni sem eru í gangi og fylgst með komandi viðburðum fyrir sjálfboðaliða

English
#326

Vinastuðningur

Við auglýsum eftir sjálfboðaliða til að hitta íraskt par. Þeir eru hommar á aldrinum 25-30 ára og hafa nýverið fengið dvalarleyfi á Íslandi. Þeir vilja hitta fólk til að fá að vita meira um Ísland, læra íslensku og efla félagsleg tengsl. Skráðu þig hér að neðan og við munum tengja ykkur saman. Hægt er að hittast í húsnæði Samtakanna ’78 ef sjálfboðaliða finnst það þægilegra. Ábyrgðaraðili: Daníel E. Arnarsson.

Tími: 1-2 klst. á tveggja til þriggja vikna fresti

Kröfur: Enskukunnátta (kjósa helst íslensku), kunnátta á Google Translate, tilbúinn í spjall

Skrá í verkefniHafa samband
#325

Vinastuðningur

Við auglýsum eftir sjálfboðaliða til að hitta yndislega konu. Hún er lesbía, frá Frakklandi og talar íslensku. Hún er á  aldursbilinu 35-45 ára. Hefur búið á Íslandi í yfir áratug og vill kynnast skemmtilegri manneskju. Skráðu þig hér að neðan og við munum tengja ykkur saman. Hægt er að hittast í húsnæði Samtakanna ’78 ef sjálfboðaliða finnst það þægilegra. Ábyrgðaraðili: Daníel E. Arnarsson.

Tími: 1-2 klst. á tveggja vikna fresti

Kröfur: Tilbúinn í spjall, íslenska- ensku- eða frönskukunnátta

Skrá í verkefniHafa samband
#324

Vinastuðningur

Við auglýsum eftir sjálfboðaliða til að hitta yndislega konu. Hún er lesbía, frá Bandaríkjunum, talar ensku og er á aldursbilinu 40-50 ára. Hefur verið mjög aktív í hinsegin baráttunni í Bandaríkjunum. Skráðu þig hér að neðan og við munum tengja ykkur saman. Hægt er að hittast í húsnæði Samtakanna ’78 ef sjálfboðaliða finnst það þægilegra. Ábyrgðaraðili: Daníel E. Arnarsson.

Tími: 1-2 klst. á tveggja vikna fresti

Kröfur: Enskukunnátta, tilbúinn í spjall

Skrá í verkefniHafa samband
#320

Skipulagning á skrifstofu

Okkur vantar einn skipulagssnilling til að koma til okkar á skrifstofuna og aðstoða okkur við að koma hirslum og geymslu í Suðurgötu 3 í gott horf, eins að yfirfara nokkrar bækur sem Samtökin eiga. Sjálfboðaliði mun vinna verkefnið með Sigurgeir Inga.

Tími: 10-12 klst.

Kröfur: Skipulagshæfni og útsjónarsemi

Skrá í verkefniHafa samband
#321

Flokkun fréttasafns á vefnum

Við auglýsum eftir sjálfboðaliða til að flokka efni á vefnum. Um er að ræða 3000 færslur inni á vefnum samtokin.is. Vefurinn er keyrðu af WordPress. Sjálfboðaliði mun vinna með Daníel E. Arnarssyni.

Tími: 30-40 klst.

Kröfur: Góð kunnátta á tölvur og grunnkunnátta á WordPress

Skrá í verkefniHafa samband
#323

Smiðsvinna og smálegt viðhald

Við leitum eftir sjálfboðaliða sem getur tekið að sér ýmis smáverk, svo sem að laga eina hurð, setja plötu á vegg, smáleg spartslvinna o.fl. Mikill kostur ef möguleiki er á að mæta með eigin verkfæri.

Tími: 4 klst.

Kröfur: Reynsla af smiðsstörfum eða öðrum verkstörfum og handlagni

Skrá í verkefniHafa samband
#355

Safna vinningum fyrir jólaleik

Við auglýsum eftir sjálfboðaliða til að flokka efni á vefnum. Um er að ræða 3000 færslur inni á vefnum samtokin.is. Vefurinn er keyrðu af WordPress. Sjálfboðaliði mun vinna með Daníel E. Arnarssyni.

Tími: 30-40 klst.

Kröfur: Góð kunnátta á tölvur og grunnkunnátta á WordPress

Skrá í verkefniHafa samband