Skip to main content

Aðgengi

Samtökin ’78 vilja bjóða öll velkomin og hafa því sett sér skýra stefnu þegar kemur að aðgengi á viðburðum

English

Ráðgjafarými Samtakana ’78 að Suðurgötu 8

Samtökin ’78 eru með ráðgjafarými að Suðurgötu 8, hinu megin við götu frá höfuðstöðvum okkar að Suðurgötu 3. Rýmið er í tignarlegu rauðuhúsi en gengið er upp hvítan stiga og gengið inn um hurðina vinstra megin. Þar er biðstofa þar sem þér býðst kaffi, te og vatn á meðan þú býður eftir að viðtalið hefjist.

Hjólastólaaðgengi: Ekki er hljólastólaðgengi að Suðurgötu 8, en það liggja tröppur upp að rýminu. Notendur hjólastóla eða annarra stoðtækja sækja ráðgjöf og fundi að Suðurgötu 3.

Hljóðvist: Góð hljóðvist er í rýminu. Þau sem nota heyrnatæki geta notað þau án vandkvæða. Engin önnur starfsemi er að Suðurgötu 8 þegar ráðgjöf á sér, því er gott næði. Lágvær tónlist er spiluð inn í biðstofunni til að tryggja næði.

Salerni: Engin kynjuð salerni eru í Suðurgötu 8.

Öruggara rými

Samtökin ’78 hafa sett sér reglur varðandi öruggara rými. Eru þær ávallt hafðar í huga á öllum viðburðum Samtakanna ’78.

1. Virðum líkamleg og andleg mörk og áttum okkur á því að við
erum með ólíkt þol fyrir ýmsu áreiti

2. Virðum ólíkan bakgrunn og sjálfsákvörðunarrétt hvers
annars, t.d. fornöfn og nöfn

3. Gerum ekki ráð fyrir og forðumst að dæma fyrirfram
kynhneigð, kyntjáningu, kyneinkenni, kynvitund, andlega og
líkamlega heilsu, efnahagslega stöðu, trú, skoðanir, reynslu
eða upplifanir hvers annars.

4. Virðum einkalíf hvers annars. Ekki þrýsta á einhvern til að
svara spurningum eða taka þátt í umræðum. Forðumst það
að deila persónulegum sögum út fyrir þetta rými.

5. Verum meðvituð um að orð og gjörðir okkar geta haft ólík áhrif á
fólk og geta komið ólíkt við fólk, bæði meðvitað og ómeðvitað.
Tilfinningar okkar allra eru réttmætar.

6. Forðumst það að öskra, æpa, grípa fram í eða tala yfir aðra
manneskju. Fylgjumst með því hve mikið við tökum þátt og
tryggjum að öll geti tekið þátt.

7. Gerum ráð fyrir góðum tilgangi. Þegar einstaklingur fer yfir
mörk látum þá vita en gerum ekki ráð fyrir því að manneskjan
ætlaði sér að meiða með sínu athæfi.

8. Munum: Við erum öll að læra.

9. Hugsaðu um þitt öryggi og þína heilsu. Ef þú vilt fara fram, endilega
gerðu það. Ef þér líður óöruggu láttu þá starfsfólk vita.

10. Ef þú verður vitni að óæskilegri hegðun eða ofbeldi láttu þá
starfsfólk vita ef þú treystir þér til.

Gjaldfrjáls ráðgjöf

Ráðgjöf hjá Samtökunum ’78 er að öllu gjaldfrjáls.

Ráðgjöf Samtakanna ’78 er fyrst og fremst hugsuð fyrir hinsegin fólk, aðstandendur hinsegin fólks og einnig til þeirra sem eru ekki viss um hinseginleika. Markmiðið að styðja einstaklinginn, veita aðstoð og vera til staðar. Þú ert aldrei ein, einn eða eitt.