Sjálfboðaliðadrifin verkefni Samtakanna ’78 eru mörg og spennandi. Þetta er alls ekki tæmandi listi og þú mátt endilega koma með hugmyndir að verkefnum
![](https://k3r6k4a9.rocketcdn.me/wp-content/uploads/2020/05/samtökin-myndir-21-blátt.png)
Vinastuðningur
Vinastuðningur er verkefni sem ætlað er að styrkja félagsleg tengsl hinsegin hælisleitenda á Íslandi. Sjálfboðaliði hittir hælisleitanda og eyðir tíma með viðkomandi, t.d. á kaffihúsi, og kynnir fyrir staðháttum. Um er að ræða 2-3 skipti á mánuði, klukkutíma í senn. Enskukunnátta skilyrði, önnur tungumálakunnátta vel metin.
Félagsmiðstöð fyrir ungmenni
Hinsegin félagsmiðstöð Samtakanna ‘78 og Tjarnarinnar er ætluð ungmennum á aldrinum 13-18 ára sem eru hinsegin eða tengja við hinseginleika á einn eða annan hátt. Félagsmiðstöðin er opin öll þriðjudagskvöld frá 19:30-22:00. Sjálfboðaliðar manna kvöldin og sjá til þess að ungmennunum líði vel og finni til öryggis.
![](https://k3r6k4a9.rocketcdn.me/wp-content/uploads/2020/05/samtökin-myndir-10-rautt.png)
![](https://k3r6k4a9.rocketcdn.me/wp-content/uploads/2020/05/samtökin-myndir-8-blátt.png)
Opin hús
Opin hús eru á fimmtudagskvöldum milli kl. 20 og 22 í húsnæði Samtakanna að Suðurgötu 3. Markmið opnu húsana er að bjóða upp á öruggan vettvang fyrir hinsegin fólk til að hittast. Sjálfboðaliðar manna kvöldin, sjá til þess að fólk upplifi sig velkomið og afgreiða í sjoppunni ef þess þarf.
Gagnaúrvinnsla og tölvustúss
Gagnaúrvinnsla felur í sér að skrá á tölvutækt form upplýsingar sem Samtökin ’78 safna í ráðgjöf og fræðslu. Góð tölvukunnátta og skilningur á Excel er vel metin. Einnig erum við oft að uppfæra vefinn, flokka gamlar fréttir, þýða og fleira skemmtilegt.
![](https://k3r6k4a9.rocketcdn.me/wp-content/uploads/2020/05/samtökin-myndir-6-rautt.png)