Ungmennahús 16-18 ára

Samtökin ’78 reka ungmennahús fyrir 16-18 ára ungmenni

Vertu með!

Ert þú á aldrinum 16-18 ára og ert hinsegin, í hinsegin pælingum? Hefurðu áhuga á hinsegin málefnum eða langar að koma í ungmennahús sem tekur öllum fagnandi? Taktu þátt í starfinu, hér eru öll velkomin.

Senda póst á skrifstofu

Við erum hér!

Ungmennahúsið er opið fimmtudagskvöld frá 19:30-22:00 og er til húsa
í Samtökunum ’78, Suðurgötu 3, 101 Reykjavík

Kort

Spurt & Svarað

Nei, það er engin skylda. Við spyrjum ekki um neitt er tengist kynvitund, kynhneigð, kyntjáningu eða kyneinkennum. Við viljum taka á móti öllum, hvort sem þú ert hinsegin, kannski hinsegin, smá hinsegin, stundum hinsegin eða veist ekki. Það má líka ekki vera viss.

Nei það kostar ekkert! Við viljum að öll geti komið til okkar án þess að þurfa að hafa áhyggjur af kostnaði. Ef farið er í ferðir eða á viðburði sem kostaner það auglýst sérstaklega og reynt eftir bestu getu að halda kostnaði í lágmarki.

Þú getur séð dagskrá hverrar opnunar á Instagram (@ungmennahus78) en einnig er alltaf í boði að slappa af, spjalla eða spila.

Við mælum að sjálfsögðu með því að foreldrar viti hvar þú ert svo þau fái ekki óþarfa áhyggjur af þér, en þú þarft ekki leyfi foreldra til að mæta.

Að sjálfsögðu! Hvort sem það er foreldri, vin eða kunningi þá er það velkomið. Það sem þér finnst best og heldur þér öruggu.

Þú mátt nýta þér hvaða þjónustu Samtakanna ’78 sem er, án þess að neinn viti. Þú getur verið í stuðningshóp, mætt í féló, mætt á opin hús og verið í einstaklingsráðgjöf. Mundu, við erum hér fyrir þig.

Ertu með spurningu?

Ekki hika við að hafa samband

Senda fyrirspurn