Það er oft sagt að fordómar byggi á fáfræði. Þekking á hinsegin málum er grundvöllur í okkar mannréttindabaráttu og því er fræðsla er einn af hornsteinum Samtakanna ’78.
431
12717
2800

Fræðsla til starfsfólks og nemenda í grunnskóla
Samtökin ’78 eru með fjölda þjónustusamninga við sveitarfélög. Starfsfólk og nemendur í þeim sveitarfélögum fá því fræðslu endurgjaldslaust. Fræðslan stendur öllum til boða og hvetjum við stjórnendur eða áhugasöm til að bóka fræðslu fyrir starfsfólk sitt og nemendur.
Ferill fræðslunnar
Við ræðum hinseginleikann í allri sinni dýrð
Við erum öll að læra og mikilvægt er að spyrja spurninga og taka virkan þátt í fræðslunni til að læra sem mest og best. Við leggjum okkur fram við að vera skýr, koma fram af heilindum og af virðingu við þau sem fá fræðslu. Hinseginfræðin eru allskonar rétt eins og hinseginleikinn sjálfur.

Spurt & Svarað
Kennsluáætlanir í hinsegin fræðslu Haustönn 2023
Opna kennsluáætlun.
Kennsluáætlanir í hinsegin fræðslu Samtakanna ‘78 eru unnar í samræmi við hæfniviðmið í Aðalnámskrá grunnskóla, sjá t.d. hér.
Um hvað fjallar fræðslan?
Í fræðslu Samtakanna ’78 er fjallað um hinseginleika, hvað það þýðir að vera hinsegin og hvert er hægt að leita fyrir aðstoð og stuðning. Allt fræðsluefni okkar er opinbert á fræðsluvefnum Hinsegin frá Ö til A, en allir fræðslufyrirlestrar okkar byggja á því efni. Einnig bendum við á kennsluáætlanir okkar sem finna má hér.
Hve margar fræðslur eru Samtökin ‘78 að halda á einu ári?
Árið 2022 voru haldin alls 431 erindi. Þar af voru flest í grunnskólum eða félagsmiðstöðvum í Reykjavík. Gert er ráð fyrir að um það bil 12.717 einstaklingar hafi hlotið fræðslu frá Samtökunum ‘78 á árinu 2022.
Ef ég panta fræðslu, hver kemur og fræðir?
Innan Samtakanna ’78 starfa fjöldi fræðara. Þú getur skoðað þau hér.
Það veit enginn neitt um hinsegin málefni í skólanum mínum, hvað get ég gert?
Samtökin ‘78 bjóða upp á fræðslu fyrir grunn-og framhaldsskólanema, auk starfsfólks. Við hvetjum þig til að benda kennara eða öðru starfsfólki á að þú hafir áhuga á að bekkurinn þinn hljóti slíka fræðslu. Ef þú treystir þér ekki til þess geturðu sjálft haft samband við Samtökin 78 og við komum ábendingu þinni áleiðis til skólans.