1.Fundur stjórnar
Starfsárið 2025-2026
mars 2026
Viðstödd eru: Bjarndís, Hannes, Hrönn, Jóhannes, Sveinn, Vera, Kári (framkvæmdastjóri).
Fundargerð ritar: Vera Illugadóttir
Fundur settur: 15:33.
Staða undirbúnings aðalfundar og landsþings
Snærós Sindradóttir kemur á fundinn og kynnir stöðu undirbúnings aðalfundar og landsþings en hún er verkefnastjóri þess. Undirbúningur gengur vel nema einn dagskrárliður á landsþingi er ekki fullbókaður. Snærós fer yfir dagskrána og stjórn ræðir.
Samþykkt fundargerðar síðasta fundar
Stjórn samþykkir fundargerð síðasta stjórnarfundar.
Stefnumótun, yfirferð og samþykkt
Stefnumótunarvinnu stjórnar með Hrönn Pétursdóttur stjórnunarráðgjafa er lokið. Stjórn fer yfir lokaskjalið sem barst frá Hrönn. Stjórn samþykkir stefnuna, sem gilda á til ársins 2030.
Önnur mál
Stjórn ræðir fréttaflutning Ríkisútvarpsins af ummælum kanslara kaþólsku kirkjunnar á Íslandi um samkynhneigða.
Fundi slitið: 16:24.