Fundinn sátu: María Helga Guðmundsdóttir – MHG, formaður. Sigurður Júlíus Guðmundsson – SJG, varaformaður. Benedikt Traustason – BT, gjaldkeri. Álfur Birkir Bjarnason – ÁBB, ritari. Þórhildur Elínardóttir Magnúsdóttir – ÞEM, meðstjórnandi. Marion Lerner – ML, áheyrnarfulltrúi trúnaðarráðs í stjórn. Daníel Arnarsson – DA, framkvæmdastjóri.
Þann 12. júlí 2017 var haldinn fundur að Suðurgötu 3 kl. 17:30.
Fundargerð ritaði Álfur Birkir Bjarnason
Fundur settur 17:30
1. Pistill framkvæmdastjóra
DA kynnir starf sitt.
2. Staða stjórnar
SJG: Stendur í undirbúningi fyrir Hinsegin daga.
BT: Lítið að gera tengt S78.
ÁBB: Skipuleggur fræðslu fyrir Regnbogakaffihús ásamt Guðmundu og Unnsteini. Ræðir við Atla Fanndal vegna afmælisrits ásamt MHG.
ML: Starf í kringum sögusýningu og annað er á bið yfir sumarið. Virkjun trúnaðarráðs í kringum Hinsegin daga.
ÞEM: Fer til útlanda bráðlega og kemur heim seinni part ágúst.
MHG: Vinnur að frumvarpi um trans og intersex málefni. Vinnur að skýrslum vegna hinsegin hælisleitenda í samstarfi við Rauða krossinn. Tilfallandi verkefni.
Þórhildur Elínardóttir Magnúsdóttir gengur af fundi 17:46
3. Stefnan fram að Hinsegin dögum
Skipuleggja gleðigönguatriði í samstarfi við trúnaðarráð.
Trúnaðarráð þarf að kjósa sér nýjan formann áður en Reynir Þór, núverandi formaður, flytur úr landi.
Fundi slitið 18:30