FundargerðirStjórn

18. stjórnarfundur 2025

By 20. janúar, 2026mars 5th, 2026No Comments

Viðstödd eru: Bjarndís, Hannes, Hrönn, Leifur, Sveinn, Vera, Kári (framkvæmdastjóri).

Fundargerð ritar: Vera Illugadóttir

Fundur settur: 15:37. 

  1. Samþykkt fundargerðar síðasta fundar

Stjórn samþykkir fundargerð síðasta stjórnarfundar. 

  1. Ö til A – uppfærsla á fræðsluvef

Legið hefur fyrir að uppfæra þarf fræðsluvefinn otila.is. Kári segir frá. Tillaga hans er að Bjarndís taki að sér ritstjórn uppfærslu á vefnum. Hún segir frá hugmyndum sínum um otila.is og fræðsluvef. Bjarndís og Kári víkja þá af fundi og stjórn ræðir. Stjórn telur Bjarndísi hæfa til verksins. Vegna fjárhagsstöðu samtakanna leggur stjórn til að verkefnið sé unnið í lotum eftir því sem fjármagn leyfir og eftir skýrri verkáætlun, og sett á frost sé fjármagn ekki til staðar. 

  1. Fræðaramál

Fjórar manneskjur eru komnar áfram í undirbúningsferli fræðara og fara í frekari þjálfun. Kári segir frá. Hann vonast til að nýir fræðarar hefji störf í febrúar-mars. Stjórn ræðir. Sveinn segir einnig frá áformum um fræðslu í félagsmiðstöðvum eldri borgara hjá Reykjavíkurborg.

  1. Kvennanefndarfundur SÞ

Sendinefnd frá Íslandi fer árlega á CSW, kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna. Samtökin ’78 hafa tekið þátt í henni undanfarin ár. Ákveða þarf hvort Samtökin taka þátt í ár en því fylgir umtalsverður kostnaður. Stjórn ræðir. Lokaákvörðun verður tekin í vikunni.

  1. Aðalfundur og landsþing

Aðalfundur er 6. mars og landsþing 7. mars. Undirbúningur stendur yfir. Kári segir frá þeirri vinnu. Bergrún á skrifstofu kemur á fundinn, og segir frá hugmynd sinni um vinnustofu fyrir ungmenni á landsþinginu. Stjórn ræðir. Skrifstofa tekur við. 

  1. Önnur mál

Leifur segir frá kynningu sem hann sótti hjá UN Women. 

Fundi slitið: 16:54.