Fundinn sátu: María Helga Guðmundsdóttir – MHG, formaður. Álfur Birkir Bjarnason – ÁBB, varaformaður. Þórhildur Elínardóttir Magnúsdóttir – ÞEM, ritari. Benedikt Traustason – BT, gjaldkeri. Kitti Anderson – KA, alþjóðafulltrúi. Sigurður Júlíus Guðmundsson – SJG, meðstjórnandi. Erica Pike – EP, áheyrnarfulltrúi í stjórn. Helga Baldvins- Bjargardóttir – HBB, framkvæmdastýra.
Þann 15. mars 2017 var haldinn fundur að Suðurgötu 3 kl. 19:30.
Fundargerð ritaði Þórhildur Elínardóttir Magnúsdóttir
Fundur settur 19.30
1. Samantekt frá Möltu
frestað
2. Samantekt frá Búkarest
frestað
3. Ályktun um stefnuskrá Andrýmis
frestað
4. Ráðning húsvarðar
frestað, lagt til að það verði haldinn sér umræðufundur
5. Tilnefning varafulltrúa í stjórn Mannréttindaskrifstofu Íslands
frestað
6. Hinsegin Tangó, fimmtudagskvöld og greitt af S’78 eða annað kvöld?
Vel inni í myndinni að S’78 borgi eitt fimmtudags-tangó-kvöld. Einnig lagt til að ef áhugi reynist mikill verði fundin önnur tímasetning fyrir framhald, annaðhvort regluleg kvöld eða stutt námskeið.
7. Hópferðir í bíó, Hjartasteinn og Moonlight
Mikill áhugi á hvoru tveggja. Ákveðið að skoða það að halda sýningu í Bíó Paradís á Moonlight, mögulega með pallborðsumræðum eftir á. Frekari umræðu frestað fram á næsta fund.
8. ILGA Reccommendations
Samtökunum gefst kostur á að leggja línurnar varðandi forgangsmál á Íslandi fyrir næsta Regnbogakort ILGA. Meðal annars er bent á almenna jafnréttislöggjöf sem bannar mismunun og löggjöf um málefni intersex og trans fólks.
Fundi slitið 19.55