Taktu þátt í afmælisári Samtakanna ’78

Samtökin ’78 undirbúa 50 ára afmæli sitt árið 2028 og leita að áhugasömu fólki til að taka þátt í afmælisnefnd og tengdum verkefnum.
Ætlunin er að blása til afmælisveislu allt árið 2028 og leitum við því að öflugu fólki sem er tilbúið að leggja okkur lið í undirbúningi og framkvæmd afmælisársins. Leitað er að fjölbreyttum einstaklingum með mismunandi styrkleika. Sjálfboðaliðar geta tekið þátt í verkefninu á sínum forsendum og er öll aðstoð vel þegin.
Undirbúningur afmælisársins hefst á næstu dögum og vikum og því leitum við að öflugu fólki í fjölbreytt verkefni.
Verkefnin eru m.a.:
  • viðburðaskipulag
  • dagskrárgerð
  • skreytingar og stemning
  • samfélagsmiðla
  • samskipti við samstarfsaðila
  • söfnun sagna/mynda/minninga
  • hönnun og kynningarefni
  • framkvæmd á viðburðum
  • fjáröflun eða styrkjamál
  • ljósmyndun/myndbandagerð
Einnig leitum við að öflugu fólki til að skipa afmælisnefnd Samtakanna. Nefndin mun leiða vinnuna við afmælisárið ásamt starfsfólki og stjórn.

Tekið er við skráningum til 16. júní nk.

Ef áhugi verður mikill gætum við þurft að velja úr hópi umsækjenda fyrir ákveðin hlutverk, en við vonumst til að geta virkjað sem flest í verkefnum tengdum afmælisárinu.

/

 

Take part in the anniversary year of Samtökin ’78

Samtökin ’78 is preparing for its 50th anniversary in 2028 and is looking for interested people to participate in the anniversary committee and related projects.

The plan is to throw a year-long anniversary celebration in 2028, and we are therefore looking for capable people who are willing to help us with the preparation and execution of the anniversary year. We are looking for a diverse group of individuals with different strengths. Volunteers can participate in the project on their own terms, and all help is greatly appreciated.

Preparations for the anniversary year will begin in the coming days and weeks, and we are therefore looking for capable people for a variety of projects.

We are also looking for capable people to form the Anniversary Committee of Samtökin ’78. The committee will lead the work on the anniversary year along with staff and the board.

Registration is until 16th of June.

If there is a lot of interest, we may have to select from the group of applicants for certain roles, but we hope to be able to involve as many people as possible in projects related to the anniversary year.

Fullt nafn/Full name(Required)
Persónufornafn/nöfn
Netfang(Required)
Símanúmer
Verkefnin eru m.a.: / Projects include:
Please select at least one
Afmælisnefnd
Ef þú vilt gefa kost á þér í afmælisnefnd endilega hakaðu hér að neðan / If you want to volunteer for anniversary committee please check the box
Hefur þú starfað fyrir Samtökin '78 áður?
Ég skil að Samtökin '78 geyma þessar upplýsingar/I understand that Samtökin will store this information(Required)