Viðstödd eru: Bjarndís, Hannes, Hrönn, Jóhannes, Vera, Sigríður Ösp (áheyrnarfulltrúi félagaráðs), Kári (framkvæmdastjóri)
Fundargerð ritar: Vera Illugadóttir
Fundur settur: 15:38.
- Samþykkt fundargerðar síðasta fundar
Stjórn samþykkir fundargerð síðasta stjórnarfundar.
- Borgarleikhús, niðurstaða fundar og umræða
Hannes sótti fund með leikhópnum Stertabendu vegna sýningar hópsins í Borgarleikhúsinu á næsta leikári. Hann fer yfir punkta sína frá fundinum og stjórn ræðir næstu skref í samstarfi við leikhúsið.
- Reykjavíkurmaraþon
Kári fer yfir stöðuna í fjáröflun í tengslum við Reykjavíkurmaraþon og stuðning við hlaupara.
- Jólagleði
Stjórn ræðir jólagleði Samtakanna í ár. Rétt er að hefja undirbúning snemma. Bjarndís stingur upp á laugardegi fyrir fyrsta sunnudag í aðventu, 29. nóvember. Það er samþykkt. Jóhannes, Leifur og Hrönn vilja ólm taka þátt í undirbúningi gleðinnar.
- Aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks
Bjarndís segir frá síðasta fundi sínum með fulltrúum dómsmálaráðuneytis vegna aðgerðaáætlunar í málefnum hinsegin fólks fyrir árin 2026-2029. Stjórn ræðir. Stjórn er eindregið þeirrar skoðunar að aðgerðaáætlunin fari í gegnum þingið og fái þinglega samþykkt.
- Starfsmannamál
Kári fer yfir starfsmannamál á skrifstofu. Stjórn ræðir.
- Önnur mál
- Stjórn ræðir vinnuhelgi stjórnar og starfsfólks í september.
- Stjórn fer yfir nýafstaðna Hinsegin daga ársins.
Fundi slitið: 16:33.