Um fræðsluna

Það er oft sagt að fordómar byggi á fáfræði. Þekking á hinsegin málum er grundvöllur í okkar mannréttindabaráttu og því er fræðsla er einn af hornsteinum Samtakanna ’78.

Bóka fræðslu

354

Fræðsluerindi árið 2025

7879

Manns fengu fræðslu á árinu 2025

10

Þjónustusamningar við sveitarfélög 2025

Ég hef setið fræðslu fyrir starfsmenn grunnskóla og svo nemendur í 3.bekk, 6.bekk og 9.bekk. Fræðslan öll til fyrirmyndar, farið yfir hugtök og skilgreiningar og mismunandi fjölskylduform og allt á mismunandi hátt eftir aldri nemenda. Einnig var lögð áhersla á fjölbreytileikann og allir hafi rétt á því að vera þeir sjálfir. Nemendur fengu svo að spyrja spurninga sem var svarað á einlægan hátt af fræðurum. Fyrir okkur starfsfólkið var svo lögð áhersla á hvernig við getum stutt sem best við nemendur okkar sem falla undir hinseginleikann og mikilvægi þess að stoppa hatursfulla orðræðu meðal nemenda.

Starfsmannahópurinn fékk fræðslu sem var alveg frábær. Öll umræðan snerist um mannlega þáttinn og hvernig við gætum sem best stutt við öll börn sama hvernig þau eru. Ég mæli mikið þessarri fræðslu fyrir alla, líka inni á vinnustöðum sem ekki þjónusta börn.

Ég sat fræðsluna með 6. bekk, 7. bekk og svo unglingastigi. Fyrir þau yngri var farið mjög létt í helstu hugtök, talað um hvað má segja og af hverju sumt særir. Mest áhersla lögð á hvað allir séu jafnir og séu bara fólk með tilfinningar.
Fyrir unglingana var farið dýpra í hugtökin, spurningum svarað, farið í alla orðræðu og hinsegin í raun gert bara mjög eðilegt, sem það á að vera.
Fyrirlesarinn okkar sagði krökkunum í lok fyrirlestranna að hann væri trans og þau urðu flest mjög hissa, enda oft með ákveðnar staðalímyndir í höfðinu.
Mjög flottur fyrirlesari sem tók vel á mikilvægu efni.

Hinseginleikinn í allri sinni dýrð

Við erum öll að læra og mikilvægt er að spyrja spurninga og taka virkan þátt í fræðslunni til að læra sem mest og best. Við leggjum okkur fram við að vera skýr, koma fram af heilindum og af virðingu við þau sem fá fræðslu. Hinseginfræðin eru allskonar rétt eins og hinseginleikinn sjálfur.

Fræðslupakkar

Fræðsla til nemenda og starfsfólks grunnskóla

Samtökin ’78 eru með þjónustusamninga við fjölda sveitarfélaga. Starfsfólk og nemendur í þeim sveitarfélögum fá því fræðslu endurgjaldslaust. Fræðslan stendur þó öllum til boða og hvetjum við stjórnendur eða áhugasöm til að bóka fræðslu fyrir starfsfólk sitt og nemendur.

Bóka fræðslu

Kennsluáætlanir

Hér er að finna kennsluáætlanir fyrir nemendafræðslur Samtakanna ’78.
Fræðslan byggir á áherslum aðalnámskrár og ligga hæfniviðmið aðalnámskrár til grundvallar.
Við aðlögum umfang fræðslunnar í samræmi við aldur nemenda og leggjum áherslu á að mæta nemendum þar sem þau eru stödd. Í öllum fræðslum gefst góður tími fyrir spurningar og umræður.
Hægt er að smella á myndirnar til að skoða kennsluáætlanir nánar.

Nánar um grunnskólafræðslu

Ferill fræðslunnar

1

Bókaðu fræðslu

Bókaðu fræðslu hér á vefnum, hringdu í okkur eða sendu okkur tölvupóst
2

Finnum tíma

Við finnum tíma í sameiningu, veljum fræðslupakka sem þú getur kynnt þér hér á síðunni, förum yfir fræðsluna og staðfestum svo
3

Við komum á staðinn

Fræðslustýra eða fræðari kemur á staðinn og fræðir
4

Endurgjöf á staðnum

Við dreifum endurgjafsblöðum og söfnum þeim saman.
5

Við verðum aftur í bandi

Eftir um tvær til þrjár vikur höfum við aftur samband og athugum hvernig fræðslan hafði áhrif á þau sem á hlýddu og ræðum málin
6

Loka endurgjöf

Eftir 2-3 mánuði eftir fræðsluna mun sá sem er skráð fyrir fræðslunni fá loka endurgjöf ásamt niðurstöðum úr endurgjöf á staðnum

Spurt & Svarað

Um hvað fjallar fræðslan?

Í fræðslu Samtakanna ’78 er fjallað um hinseginleika, hvað það þýðir að vera hinsegin og hvert er hægt að leita fyrir aðstoð og stuðning. Allt fræðsluefni okkar er opinbert á fræðsluvefnum Hinsegin frá Ö til A, en allir fræðslufyrirlestrar okkar byggja á því efni. Einnig bendum við á kennsluáætlanir okkar hér fyrir ofan.

Hve margar fræðslur eru Samtökin ‘78 að halda á einu ári?

Árið 2024 voru haldin alls 451 erindi. Gert er ráð fyrir að um það bil 11.608 einstaklingar hafi hlotið fræðslu frá Samtökunum ‘78 á árinu 2024.

Ef ég panta fræðslu, hver kemur og fræðir?

Innan Samtakanna ’78 starfa fjöldi fræðara. Þú getur skoðað þau hér.

Það veit enginn neitt um hinsegin málefni í skólanum mínum, hvað get ég gert?

Samtökin ‘78 bjóða upp á fræðslu fyrir grunn-og framhaldsskólanema, auk starfsfólks. Við hvetjum þig til að benda kennara eða öðru starfsfólki á að þú hafir áhuga á að bekkurinn þinn hljóti slíka fræðslu. Ef þú treystir þér ekki til þess geturðu sjálft haft samband við Samtökin 78 og við komum ábendingu þinni áleiðis til skólans.