Aðalfundur Samtakanna ’78

6. mars, 2022

6

.
Febrúar
Frestur til að skila inn lagabreytingatillögum

13

.
Febrúar
Frestur til að skila framboðum

20

.
Febrúar
Frestur til að skila inn umsókn um hagsmunaaðild

20

.
Febrúar
Tillögur og framboð birt hér á vefnum

Framboð og fundargögn

Hér geturðu boðið þig fram í stjórn, tilnefnt einstakling í stjórn og svo skoðað þau sem hafa nú þegar boðið sig fram. Einnig geturðu sent inn lagabreytingatillögur og umsókn um hagsmunaðild. Öll framboð og tillögur birtast svo hér þegar frestur er liðinn.

Senda inn framboðSenda inn lagabreytingatillöguSækja um hagsmunaaðild

Dagskrá aðalfundar og hliðarviðburðir

Í ár munu Samtökin ’78 fagna aðalfundi sínum af miklum krafti. Hefðbundin aðalfundardagskrá fer fram sunnudaginn 6. mars. Dagskrá og staðsetning verður auglýst síðar, fylgstu með!

Dagskrá helgarinnar (væntanleg)Skráning á aðalfund

Spurt & Svarað

Aðalfundur er æðsta vald og stofnun Samtakanna ’78, með öðrum orðum þá er aðalfundur sá vettvangur þar sem allt er ákveðið í Samtökunum ’78. Á aðalfundi er kjörin stjórn og félagaráð, ásamt því að fara yfir fjárhag félagsins og ræða öll mál. Einnig er samþykktum (lögum) félagsins aðeins breytt á aðalfundi.

Sunnudaginn 6. mars, 2022 klukkan 13.

Staðsetning aðalfundar verður kynnt síðar en hann verður nálægt höfuðstöðvum Samtakanna ’78.

Vissulega er það ekki lagaleg skylda en mögulega lýðræðisleg. Mjög gott er að mæta og eru allir félagar innilega hvattir til að sækja aðalfund.

Nei, því miður ekki. Aðalfundur er vettvangur fyrir skráða félaga Samtakanna ’78 sem hafa greitt félagsgjöld. Ef þú ert ekki viss um hvort þú sért skráður félagi, endilega hafðu samband á skrifstofa@samtokin78.is

Fyrir fundinn. Félagsgjöld verða send út í heimabanka þinn 10. janúar 2022.

Félagsskírteini Samtakanna ’78 eru rafræn. Líklegasta skýringin á því að þú ert ekki með félagsskírteini er sú að mögulega er tölvupóstfang þitt ekki uppfært í félagatali Samtakanna ’78. Þú getur reddað því hér.

Algjörlega. Þrjú gjöld eru í boði og er það félaga algjörlega frjálst að velja hvað sem er. Uppfærðu félagsgjöldin þín hér.

Svo sannarlega er það hægt, svo lengi sem einhver er ekki komin/nn/ð með það númer. En þetta græjarðu hér.

Framkvæmd kosninga er á höndum kjörnefndar. Nánari upplýsingar verða gefnar út um framkvæmd kosninganna þegar nær dregur.

Heldur betur! Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hefst 21. febrúar á skrifstofu Samtakanna ’78, Suðurgötu 3, 101 Reykjavík. Hægt er að kjósa á skrifstofutíma eða eftir samkomulagi við starfsfólk skrifstofunnar. Ef þú býrð erlendis eða langt frá skrifstofunni þá er möguleiki að fá kjörgögn send heim en kjósandi ber ábyrgð á því að atkvæði skili sér til baka fyrir 6. mars.