Samtökin ’78 hafa sett sér reglur varðandi öruggara rými. Eru þær ávallt hafðar í huga á öllum viðburðum Samtakanna ’78. Með mætingu á viðburði Samtakanna ’78 samþykkir þú að fara eftir þeim.
- Virðum líkamleg og andleg mörk og áttum okkur á því að við erum með ólíkt þol fyrir ýmsu áreiti
- Virðum ólíkan bakgrunn og sjálfsákvörðunarrétt hvers annars, t.d. fornöfn og nöfn
- Gerum ekki ráð fyrir og forðumst að dæma fyrirfram kynhneigð, kyntjáningu, kyneinkenni, kynvitund, andlega og líkamlega heilsu, efnahagslega stöðu, trú, skoðanir, reynslu eða upplifanir hvers annars.
- Virðum einkalíf hvers annars. Ekki þrýsta á einhvern til að svara spurningum eða taka þátt í umræðum. Forðumst það að deila persónulegum sögum út fyrir þetta rými.
- Verum meðvituð um að orð og gjörðir okkar geta haft ólík áhrif á fólk og geta komið ólíkt við fólk, bæði meðvitað og ómeðvitað. Tilfinningar okkar allra eru réttmætar.
- Forðumst það að öskra, æpa, grípa fram í eða tala yfir aðra manneskju. Fylgjumst með því hve mikið við tökum þátt og tryggjum að öll geti tekið þátt.
- Gerum ráð fyrir góðum tilgangi. Þegar einstaklingur fer yfir mörk látum þá vita en gerum ekki ráð fyrir því að manneskjan ætlaði sér að meiða með sínu athæfi.
- Munum: Við erum öll að læra.
- Hugsaðu um þitt öryggi og þína heilsu. Ef þú vilt fara fram, endilega gerðu það. Ef þér líður óöruggu láttu þá starfsfólk vita.
- Ef þú verður vitni að óæskilegri hegðun eða ofbeldi láttu þá starfsfólk vita ef þú treystir þér til.