Skip to main content
search

UngmennaStyrkur

Samtökin ‘78 og Styrkur sjúkraþjálfun eru með lokaða virknihópa fyrir trans ungmenni. Markmið hópanna er að auka líkamlega virkni og bæta með því líkamlega og andlega heilsu. Boðið er upp á einn hópatíma í viku, undir handleiðslu Ragnheiðar Silju Kristjánsdóttur sjúkraþjálfara.

Námskeiðið hefst á klukkustundar einstaklingstíma þar sem viðtal og skoðun sjúkraþjálfara (spurningalistar, styrkmæling og þolmæling) fer fram. Foreldrar/forráðamenn eru velkomin með í fyrsta tímann.

Hópurinn er fyrir ungmenni á aldrinum 13 til 17 ára og er á miðvikudögum frá klukkan 16:00 – 17:00

Hópurinn eru sérstaklega hugsaður fyrir þau sem hafa átt erfitt með að taka þátt í hreyfingu og/eða félags- og skólastarfi t.d. vegna kynama og það verður tekið tillit til þess í hópnum. Stefnt er að því að búa til öruggt andrúmsloft svo ungmennin geti notið þess að hreyfa sig á fjölbreyttan hátt.

Til að geta tekið þátt í hópnum þarf að fá beiðni um virkniþjálfun frá heimilislækni fyrir sjúkraþjálfun, en þá er einungis greitt komugjald 1.860 kr fyrir fyrsta tímann og svo 875 kr fyrir hvern hóptíma sem mætt er í. Athugið að ef einstaklingur er ekki með beiðni þarf að borga bráðagjald fyrstu 6 tímana sem Sjúkratryggingar styrkja og svo fullt gjald eftir það.

Aðgengi hjá Styrk sjúkraþjálfun er gott, en þau bjóða aðeins upp á kynhlutlausa skiptiaðstöðu í formi einkaklefa. Einnig eru kynhlutlaus salerni á staðnum. Sturtuaðstaða er ábótavant en tvær sturtur í einkaklefa eru til staðar fyrir þau sem vilja

Ragnheiður Silja sjúkraþjálfari hefur töluverða reynslu á að vinna með börnum og ungmennum. Hún hefur starfað sem skátaforingi síðustu 6 árin þar sem hún hefur meðal annars unnið með trans ungmennum. Hún hefur fengið fræðslu frá Samtökunum ‘78 og mun einnig fá handleiðslu frá ráðgjafa á vegum Samtakanna á meðan á verkefninu stendur.

Þau sem hafa áhuga á að taka þátt í virknihópnum eru vinsamlegast beðin um að skrá sig hér fyrir neðan.

Ragnheiður Silja sjúkraþjálfari mun síðan hafa samband við þau sem hafa áhuga og finna með þeim fyrsta tíma.