Skip to main content
search
FundargerðirStjórn

12. Stjórnarfundur 2024

By 10. september, 2024september 24th, 2024No Comments

Viðstödd eru: Bjarndís, Hannes, Hrönn, Kristmundur, Sveinn, Vera, Kári (framkvæmdastjóri) 

Fundargerð ritar: Vera Illugadóttir

Fundur settur: 15:34.

1.Erindi frá HIV Ísland

HIV Ísland hefur áhuga á að vera með málþing um kynheilbrigði í samstarfi við Samtökin. Stjórn líst vel á það og samþykkir að hafa aðkomu að málinu. Sveinn er tengiliður fyrir hönd stjórnar. 

2.Kynningardagur S78 og Stígamóta

Kári og Bjarndís heimsóttu Stígamót. Upp kom hugmynd að halda kynningardag þar sem samtökin geta kynnt sér starfsemi hvorra annarra. Stjórn samþykkir það. 

3.Verkefni skrifstofu fram að áramótum

Kári kynnir verkefni starfsfólks skrifstofu fram að áramótum. Stjórn ræðir ýmis mál tengd þeim verkefnum.

4.Félagsfundur

Félagsfundur verður 26. október. Stjórn ræðir hugmynir að dagskrá í kringum fundinn. 

5.Samningur við Kópavogsbæ

Kópavogsbær hefur komið að máli við Samtökin um samstarfssamning. Stjórn gleðst.

6.Fundur með félags- og vinnumálaráðherra

Kári og Bjarndís funduðu með félags- og vinnumálaráðherra. Kári segir frá fundinum. Rætt var um fjármál, fræðslu, Regnbogakortið og fleira. Í framhaldi af því ræðir stjórn vítt og breytt um fræðslumál.

7.Fitting In

Sveinn segir frá erindi sem honum barst frá Davíð Samúelssyni um verkefni sem hann vinnur að, Fitting In. Stjórn ræðir. Málið fer til skrifstofu.

 

Önnur mál

  • 60+-hópurinn hefur enn ekki tekið formlega umræðu um að fá áheyrnarfulltrúa í stjórn.

 

  • Kvikmyndasafn fyrirhugar sýningar á hinsegintengdum kvikmyndum. Stjórn ræðir mögulega aðkomu að því.

 

Fundi slitið: 16:53.