Kjörnefnd Samtakanna ’78 hefur ákveðið að framlengja frest til að bjóða sig fram til stjórnar um eina viku, eða til föstudagsins 20. febrúar.
Aðalfundur Samtakanna ’78 fer fram í Iðnó föstudaginn 6. mars og hefst klukkan 17. Framboðum skal skilað skriflega til kjörnefndar og tilgreina varaframboð ef við á. Öll fyrirliggjandi framboð verða kynnt á vefsíðu félagsins þegar frestur er runninn út.
Tilkynna má um framboð á síðu aðalfundarins.
Um stjórn Samtakanna ’78 segir í lögum félagsins:
4. Stjórn
4.1. Stjórn samanstendur af formanni og 6 stjórnarmeðlimum. Stjórnarmeðlimir skipta með sér hlutverkum varaformanns, ritara, gjaldkera og þriggja meðstjórnenda.
4.2. Stjórnin fer með umboð félagsins og ákvörðunarvald næst aðalfundi og félagsfundi og kemur fram fyrir hönd þess. Stjórn ræður framkvæmdastýri sem ber ábyrgð á starfsmannahaldi og daglegum rekstri.
4.3. Formaður er oddviti stjórnar og stýrir fundum hennar. Í samráði við stjórn ber formaðurábyrgð á að starfsemi félagsins fari samkvæmt lögum. Varaformaður sinnir forystustörfum með formanni og gegnir störfum formanns í forföllum hans. Ritari sér um ritun fundargerða á stjórnarfundum. Gjaldkeri er ábyrgur fyrir fjárreiðum félagsins. Meðstjórnendur sinna öðrum verkum sem stjórn ákveður. Stjórn skal á fyrsta fundi sínum skipta með sér verkum og setja sér skriflegar verklagsreglur til að vinna eftir.
4.4. Stjórnin skal halda minnst 12 stjórnarfundi á hverju starfsári. Stjórnarfundur er lögmætur ef meirihluti stjórnar er á fundi, þar með taldir formaður eða varaformaður.
4.5. Öldungadeild, Félaga- og ungmennaráð skulu kjósa sér hvort sinn áheyrnafulltrúa í stjórn og varafulltrúa þeirra, sbr. 5.3. og 6.3. gr. Áheyrnafulltrúarnir eiga seturétt á öllum stjórnarfundum með málfrelsi og tillögurétt. Ef stjórnarmaður forfallast skal áheyrnafulltrúi félagaráðs taka sæti hans.
4.6. Ef stjórnarmaður hverfur úr stjórn á kjörtímabili skal félagaráð skipa stjórnarmann í hans stað úr sínum röðum. Ef formaður hverfur úr stjórn á kjörtímabili skal varaformaður taka sæti hans. Ef varaformaður, gjaldkeri, ritari eða alþjóðafulltrúi hverfur úr stjórn skal stjórn skipa úr sínum röðum í embættið fram að næsta aðalfundi. Endurskipan í embætti innan stjórnar skal fara fram eftir að félagaráð hefur tilnefnt nýjan stjórnarmeðlim.
4.7. Samþykktar fundargerðir stjórnar skulu gerðar aðgengilegar á heimasíðu félagsins. Þegar stjórn fjallar um viðkvæm trúnaðarmál skal halda utan um þau í sérstakri trúnaðarbók sem einungis er aðgengileg stjórn.
Það er bæði gaman og gjöfult að starfa innan Samtakanna ’78. Þannig fæst mikilvæg innsýn í samfélag okkar og tækifæri til að láta gott af sér leiða.
Við hvetjum öll til að gefa kost á sér!


