Aðalfundur Trans Ísland
23. febrúar kl. 17:30 - 18:30
Aðalfundur Trans Íslands verður haldinn kl. 17:30 mánudaginn 23. febrúar næstkomandi í húsnæði Samtakanna ’78 að Suðurgötu 3.
Atkvæðisrétt og kjörgengi hefur skráð félagsfólk sem hefur borgað félagsgjöld ársins 2026. Þau sem ekki eru skráð í félagatalið geta skráð sig með eftirfarandi formi:
https://forms.gle/DDKNHMQvpcwk4D9p7
https://forms.gle/DDKNHMQvpcwk4D9p7
Að sinni verður enginn posi á staðnum og því EKKI hægt að greiða félagsgjöld með korti á fundinum. Við mælum því með að greiða þau fyrir fundinn með því að leggja inn á reikning Trans Íslands með millifærslu og senda kvittun á stjorn@transisland.is:
reikn. 0133-15-006932
kt. 491107-0650
reikn. 0133-15-006932
kt. 491107-0650
Einnig er hægt að leggja inn á félagið í gegnum Aur með notandanafninu @transisland eða númerinu 123 791 0078.
Almennt félagsgjald er 2.000 kr. eða 500 kr. fyrir nema, öryrkja, eða önnur sem hafa ekki efni á að borga almennt félagsgjald.
Dagskrá:
1. Fundur settur.
2. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
3. Lögmæti aðalfundar staðfest.
4. Skýrsla stjórnar.
5. Skoðaðir ársreikningar lagðir fram.
6. Umræða og atkvæðagreiðsla um skýrslu stjórnar og ársreikninga.
7. Lagabreytingar.
8. Kosning forseta.
9. Kosning fjögurra stjórnarmeðlima.
10. Kosning eins skoðunaraðila reikninga.
11. Samþykkt félagsgjalds.
12. Önnur mál.
1. Fundur settur.
2. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
3. Lögmæti aðalfundar staðfest.
4. Skýrsla stjórnar.
5. Skoðaðir ársreikningar lagðir fram.
6. Umræða og atkvæðagreiðsla um skýrslu stjórnar og ársreikninga.
7. Lagabreytingar.
8. Kosning forseta.
9. Kosning fjögurra stjórnarmeðlima.
10. Kosning eins skoðunaraðila reikninga.
11. Samþykkt félagsgjalds.
12. Önnur mál.
Fólki sem hefur áhuga á að bjóða sig fram í stjórn er bent á að gera það með þessu formi:
https://forms.gle/hR31Ws8bBkjH5haM8
https://forms.gle/hR31Ws8bBkjH5haM8
Einnig verður hægt að bjóða sig fram á fundinum sjálfum.
Tillögur að lagabreytingum þurfa að berast stjórn með minnst tveggja daga fyrirvara í tölvupósti á stjorn@transisland.is. Þær tillögur sem kosið verður um verða birtar félagsfólki minnst sólarhring fyrir aðalfund. Núgildandi lög eru aðgengileg á vef félagsins:
https://transisland.is/skjol/
https://transisland.is/skjol/
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest!