Sveinn Ísarr Kjartansson

Framboð til stjórnar

Segðu okkur frá þér, hver ertu?

62 ára hommi
Giftur og er hamingjusamur, glaður og frjáls ❣️

Menntaður matreiðslumeistari og starfa sem yfirmatreiðslumaður hjá Seðlabanka Íslands.

Bý í Reykjavík með maka mínum Viðari Eggertsyni og hundinum Ísari.

Fyrri störf og reynsla hjá Samtökunum ’78 og hvaða reynslu munt þú koma með inn í Samtökin ’78

Hef verið í stjórn Samtakanna ’78 síðustu 2 ár.
Er öldungurinn í hópnum.

Hef mikla hinsegin lífsreynslu. tilheyrtilheyrt hinsegin samfélaginu frá því 1981, bæði hér heima og erlendis.

Reynslu mína, sem HIV-jákvæður svo til frá byrjun faraldursins, hef ég einnig í fartaskinu, eða með öðrum orðum, er með svartabeltið í að tilheyra jaðarsettum, útskúfuðum hópi fólks.

Ég hef einnig reynslu af setu í stjórnum nokkurra grasrótarfélaga, svo sem Sloow food og stuðningsfélagsins Alanó, sem og verið í stjórn fyrirtækja. Ég hef verið í fyrirtækjarekstri og verið partur af því að skipuleggja stóra viðburði.

Hvert er mat þitt á stöðu Samtakanna ’78 í dag?

Tel Samtökin ’78 standa sterk og mikið þarft starf hefur áunnist!
Á sama tíma þarf nauðsynleg sjálfskoðun og framsækni þarf að eiga sér stað með reglulegu millibili.

Áfram veginn!

Hvað leggur þú höfuðáherslu á þegar kemur að starfi Samtakanna ’78?

Halda áfram því sjálfboðastarfi sem ég get sinnt og hef verið að sinna
láta gott af mér leiða fyrir allt hinsegin samfélagið eins og mér er unnt.