Vera Illugadóttir

Framboð til stjórnar

Segðu okkur frá þér, hver ertu?

Ég heiti Vera og er 37 ára, fædd og uppalin í Reykjavík. Ég hef starfað við dagskrárgerð og fréttamennsku hjá Ríkisútvarpinu frá 2012, og hef undanfarin ár haft umsjón með útvarpsþáttunum Í ljósi sögunnar á Rás 1. Ég bý í miðborg Reykjavíkur og á kærustu og tvo ketti. Ég hef áhuga á sagnfræði, skrítnum dýrum og spurningakeppnum og mér finnst skemmtilegt að hlaupa.

Fyrri störf og reynsla hjá Samtökunum ’78 og hvaða reynslu munt þú koma með inn í Samtökin ’78

Ég legg áherslu á að stjórn standi vörð um það mikilvæga starf sem Samtökin ’78 sinnir í hagsmunabaráttu og fræðslu, og utanumhaldi um fólkið okkar. Stjórn Samtakanna sé einnig öflugur bakhjarl framkvæmdastjóra og starfsfólks á skrifstofu þegar á reynir.

Þá líður að því að Samtökin fagni stórafmæli, innan fárra ára, og ég tel mikilvægt að huga strax að undirbúningi afmælisársins, sérstaklega með tilliti til varðveislu á sögu Samtakanna og réttindabaráttu hinsegin fólks á Íslandi, og miðlun þeirrar sögu til komandi kynslóða.

Hvert er mat þitt á stöðu Samtakanna ’78 í dag?

Sem stjórnarmaður hef ég fengið að kynnast því vel hve gríðarlega öflugt starf Samtakanna ’78 er, og það þó að á móti blási, oft ansi hressilega, um þessar mundir.

Ekki er hægt að líta fram hjá því í dag að sótt er að Samtökunum ’78 og samfélagi hinsegin fólks á Íslandi og Samtökin standa frammi fyrir margvíslegum áskorunum. Ég tel að Samtökin standi engu að síður sterk en mikilvægt er að halda áfram að styrkja starfið, bæði út á við og inn á við.

Stjórn Samtakanna þykir mér hafa unnið vel saman að þessu marki síðustu ár og ég vil gjarnan fá tækifæri til að halda þeirri vinnu áfram.

Hvað leggur þú höfuðáherslu á þegar kemur að starfi Samtakanna ’78?

Ég legg áherslu á að stjórn standi vörð um og styrki það mikilvæga starf sem Samtökin ’78 sinna í fræðslu og hagsmunabaráttu, og utanumhaldi um fólkið okkar.

Þá finnst mér mikilvægt að halda áfram vinnu að því að brúa kynslóðabilið sem myndast hefur í samfélagi hinsegin fólks á Íslandi. Yngri kynslóðir hafa gríðarlega margt að læra af eldri kynslóðum, ekki síst nú þegar mótvindar blása. Mikilvægt er sömuleiðis að tryggja stöðu eldri kynslóða. Það er okkur öllum til hags að samtal og samvinna kynslóðanna sé sem mest.

Sem áhugamanneskja um sögu og miðlun hennar, finnst mér afar mikilvægt að halda sögu Samtakanna ’78 og samfélags okkar til haga og tryggja að hún glatist ekki. Svo nálgast fimmtíu ára afmæli Samtakanna óðum og mikilvægt að halda rækilega upp á það! Þann undirbúning þarf að hefja sem allra fyrst, enda býður afmælisárið upp á margvíslega möguleika til að skoða og skrásetja sögu okkar, og hampa henni bæði innan samfélags okkar og út á við.