Framboð til stjórnar
Segðu okkur frá þér, hver ertu?
Ég er manneskja á fimmtugsaldri og notast við öll fornöfn. Ég starfa sem lögfræðingur og hef verið meðlimur samtakanna í fjölda ára og lengi langað til að taka meiri þátt í starfinu. Annars er ég tónlistarelskandi bókaormur sem stunda sjósund, fjallgöngur og flesta útiveru. Ég er líka flink í höndunum, prjóna, hekla og geri allskonar.
Fyrri störf og reynsla hjá Samtökunum ’78 og hvaða reynslu munt þú koma með inn í Samtökin ’78
Ég hef ekki reynslu innan Samtakanna 78 að öðru leyti en að mæta á viðburði. Reynsla mín sem ég kem með er að ég hef teki þátt í öðru félagsstarfi og í því starfi hef ég sem dæmi lesið yfir lagabreytingar hjá öðrum félagasamtökum og tekið þátt í allskonar líkt og hugmyndavinnu, skipulagningu og vinnu við texta. Fyrir utan það er ég mjög skipulögð og vinn vel í hópi þó svo að mér finnist að það eigi að banna hópverkefni.
Hvert er mat þitt á stöðu Samtakanna ’78 í dag?
Ég held að við séum að takast á við mikið bakslag en þau sem eru í forsvari fyrir Samtökin hafa staðið sig mjög vel í að takast á við þá upplýsingaóreiðu sem er í gangi.
Hvað leggur þú höfuðáherslu á þegar kemur að starfi Samtakanna ’78?
Mannréttindi fyrir öll óháð uppruna.