Fundi stýrir: Jóhannes Þór Skúlason
Fundargerð ritar: Vera Illugadóttir
Fundur settur: 17:07.
- Starfsfólk fundarins
Jóhannes Þór Skúlason setur fundinn og tilnefnir sjálfa sig í hlutverk fundarstjóra og Veru Illugadóttur í hlutverk ritara.
- Lögmæti fundarins staðfest
Félagsfund skal boða skriflega með að minnsta kosti viku fyrirvara og var það gert á vef félagsins 5. maí, ásamt því að fundurinn var auglýstur á samfélagsmiðlum félagsins sama dag. Á fundinum voru fleiri en fimmtán einstaklingar þegar hann var settur.
- Kynning á húsnæðismálum Samtakanna
Bergrún skrifstofustjóri heldur kynningu um húsnæðismál Samtakanna eins og staðan er í dag. Þar ber hæst að skrifstofa Samtakanna er flutt úr kjallara Suðurgötunnar 3 í leiguhúsnæði á Tjarnargötu 4.
- Umræður og önnur mál
Starfsfólk og stjórn taka á móti spurningum frá fundargestum og leitast við að svara þeim.
Fundi slitið: 17:25.