[English below] Samtökin ‘78 héldu hið árlega Landsþing hinsegin fólks þann 7. mars sl. Þema landsþingsins var Hinsegin fólk: Höndum saman, og þingið litaðist af samfélagi og samstöðu. Tilgangur dagskrárinnar var að fá okkur til þess að læra hvert af öðru, eiga samtal og styrkja samfélag hinsegin fólks á Íslandi. Ungmennaráð tók á móti gestum þingsins og sat svo fyrir svörum uppi á Sunnusal ásamt starfsfólki og stjórn Samtakanna ’78.
Bjarndís Helga Tómasdóttir formaður opnaði þingið í upphafi og Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra ávarpaði fundinn. Eftir ræðu ráðherra flutti tónlistarmaðurinn TORFI tvö lög, lag Hinsegin daga 2025 Öðruvísi og ábreiðu af lagi Páls Óskars, Partí fyrir tvo.
TORFI flutti tvö lög
Sindri Sparkle Freyja Bjarnabur fjöllistakvár, Snæ Humadóttir ungmenni, Nuno Enríques Santos og Maja Íris Biskup frá líkamsræktarhópnum Sterkari saman ræddu hvernig við styrkjum samfélagið okkar, um fjölbreytileika og ólíkar raddir, en Bergrún Andradóttir skrifstofustjóri leiddi spjallið.

Í öðrum dagskrárlið Landsþingsins stýrði Aldís Þorbjörg Ólafsdóttir, sálfræðingur og kynlífsráðgjafi, umræðum um Kynheilbrigði og erótík. Í pallborði voru Bjartey Ingibergsdóttir hjúkrunarfræðingur, Indíana Rós Ægisdóttir kynfræðingur og Villi Vilhjálms fulltrúi Samtakanna ‘78 í fagráði landlæknis um kynheilbrigði, fræðari og heilsufræðingur.

Næst á dagskrá var spjall þeirra Kára Garðarssonar framkvæmdastjóra Samtakanna ’78, dr. Hafrún Kristjánsdóttir íþróttasálfræðingur, Willum Þór Þórsson forseti ÍSÍ og Pétur Björgvin Sveinsson um fjarveru homma í efstu deild íþrótta á Íslandi.

Í lokin sátu Birna Hrönn Glimmer Björnsdóttir, Eva María Þórarinsdóttir Lange, Fríða Bonnie Andersen og Sigurjóna Hauksdóttir fyrir svörum undir dyggri stjórn Helgu Haraldsdóttur í pallborðinu Samfélagskapandi stemningskonur.

Að kvöldi laugardags var enginn annar en Páll Óskar sem tróð upp á vel heppnuðu Samtakaballi þar sem DJ Sunna Ben þeytti skífum.
Við þökkum öllum sem sóttu viðburði helgarinnar kærlega fyrir komuna og vonum að þið hafið haft gagn og gaman af!
//
Samtökin ’78 held their annual National Queer Assembly on 7th March. The theme of the assembly was Queer People: Joining Forces, and the event was characterized by community and solidarity. The purpose of the program was to get us to learn from each other, engage in conversation and strengthen the queer community in Iceland. The Youth Council welcomed the assembly’s guests and then took questions up in Sunnusalur along with the staff and board of Samtökin ’78.
Chair Bjarndís Helga Tómasdóttir opened the assembly, and Hanna Katrín Friðriksson, Minister of Industries, addressed the meeting. After the minister’s speech, the musician TORFI performed two songs: the 2025 Queer Days anthem Öðruvísi and a cover of Páll Óskar’s song, Partý fyrir tvo.

Sindri Sparkle Freyja Bjarnabur, a multidisciplinary artist, Snæ Humadóttir, youth, Nuno Enríques Santos and Maja Íris Biskup from fitness group Sterkari saman (Stronger Together) discussed how we can strengthen our community, diversity and different voices, with office manager Bergrún Andradóttir leading the discussion.

In the second part of the National Queer Assembly’s programme, Aldís Þorbjörg Ólafsdóttir, a psychologist and sex counsellor, moderated a discussion on sexual health and erotica. The panel included Bjartey Ingibergsdóttir, a nurse, Indíana Rós Ægisdóttir, a sexologist, and Villi Vilhjálms Representative for Samtökin ’78 on the Directorate of Health’s professional council for sexual health and health educator.

Next on the agenda was a discussion between Kári Garðarsson, Executive Director of Samtökin ’78, Dr. Hafrún Kristjánsdóttir, a sports psychologist, Willum Þór Þórsson, President of the National Olympic and Sports Association of Iceland, and Pétur Björgvin Sveinsson about the absence of gay men in top-tier sports in Iceland.

Finally, Birna Hrönn Glimmer Björnsdóttir, Eva María Þórarinsdóttir Lange, Fríða Bonnie Andersen and Sigurjóna Hauksdóttir took questions under the capable direction of Helga Haraldsdóttir in the panel Community building through events.
On Saturday evening, pop-icon Páll Óskar performed at a successful Samtökin-Ball, where DJ Sunna Ben was on the decks.
We would like to thank everyone who attended the weekend’s events for coming, and we hope you found it both useful and enjoyable!


