- fundur stjórnar
Starfsárið 2025-2026
- mars 2026
Viðstödd eru: Bjarndís, Hannes, Hrönn, Jóhannes, Sveinn, Vera, Kári (framkvæmdastjóri).
Fundargerð ritar: Vera Illugadóttir
Fundur settur: 15:33.
- Staða undirbúnings aðalfundar og landsþings
Snærós Sindradóttir kemur á fundinn og kynnir stöðu undirbúnings aðalfundar og landsþings en hún er verkefnastjóri þess. Undirbúningur gengur vel nema einn dagskrárliður á landsþingi er ekki fullbókaður. Snærós fer yfir dagskrána og stjórn ræðir.
- Samþykkt fundargerðar síðasta fundar
Stjórn samþykkir fundargerð síðasta stjórnarfundar.
- Stefnumótun, yfirferð og samþykkt
Stefnumótunarvinnu stjórnar með Hrönn Pétursdóttur stjórnunarráðgjafa er lokið. Stjórn fer yfir lokaskjalið sem barst frá Hrönn. Stjórn samþykkir stefnuna, sem gilda á til ársins 2030.
- Önnur mál
Stjórn ræðir fréttaflutning Ríkisútvarpsins af ummælum kanslara kaþólsku kirkjunnar á Íslandi um samkynhneigða.
Fundi slitið: 16:24.