FundargerðirStjórn

2. stjórnarfundur 2026

By 31. mars, 2026No Comments

2.fundur stjórnar

Starfsárið 2026-2027

mars 2026

 

Viðstödd eru: Bjarndís, Hrönn, Jóhannes, Sveinn, Vera, Kári (framkvæmdastjóri), Margrét (áheyrnarfulltrúi félagaráðs)

Fundargerð ritar: Vera Illugadóttir

Fundur settur: 16:33.

 

Yfirferð og samþykkt fundargerðar síðasta stjórnarfundar

Stjórn hefur lesið fundargerð síðasta stjórnarfundar og samþykkir hana.

 

Félagaráð 

Fyrsti fundur félagaráðs var haldinn í síðustu viku. Bjarndís sat fundinn og segir frá. Fundurinn gekk vel og Bjarndís segir að mikill hugur sé í ráðinu. Anna Katrín er áfram oddviti. Margrét Jóhannsdóttir er nýr áheyrnarfulltrúi félagaráðs í stjórn, stjórn biður hana velkomna. Margrét tekur undir orð Bjarndísar um góðan fund og hug í félagaráði.

 

Hlaupahópur frá Bretlandi

Von er á breskum hlaupahóp til landsins. Þau eru að vinna að verkefni sem tengist trans og hinsegin fólks í íþróttum og vilja gjarnan ræða þau málefni við Íslendinga. Hrönn er í tengslum við hópinn og segir frá. Nokkur möguleg nöfn eru nefnd. Kári og Hrönn taka málið áfram.

 

ILGA-Europe

Í tengslum við vinnu við Regnbogakort næsta árs hefur ILGA-Europe beðið Samtökin ’78 að nefna þrjár áherslur í starfi næsta árs, af málefnalista ILGA sem stjórnarliðar hafa fengið. Svara þarf 2. apríl. Stjórn felur Kára að draga fram þrjú atriði og kynna svo stjórn.

 

Vinnuhelgi stjórnar og starfsfólks

Búið er að ákveða dagsetningu vinnuhelgi stjórnar og starfsfólks og velja henni stað, Kjarnholt í Biskupstungum. Formaður fer yfir áherslur helgarinnar og stjórn kastar fram hugmyndum. 

 

Önnur mál

Byrjað er að safna styrkjum í tengslum við Reykjavíkurmaraþon á Hlaupastyrkur.is. Hrönn hvetur fólk til að safna hlaupurum og styrkjum. 

 

Fundi slitið: 17:01.