Föstudagskvöldið fyrir stoltsgönguna verður að vanda boðið upp á hin sívinsælu kynjaböll Hinsegin daga í Reykjavík. Að þessu sinni verður stelpuballið á Q-bar og strákaballið á Barnum, Laugavegi 22. Og að sjálfsögðu verður þess vandlega gætt að engum af „vitlausu“ kyni verði hleypt inn!
Á stelpuballi sjá Eva María og Birna Hrönn um tónlistina og strákaballi þeytir DJ Fairyboy skífum.
Miðaverð 1000 kr.
-Hinsegin dagar í Reykjavík