Bjørt Lind, nýkjörin á þing hitti Siggu Birnu, Heidi og Maríu frá Trans vinum

Sigga Birna, Bjørt Lind, Heidi og María frá Trans vinum í Lögþinginu í Færeyjum.

[English below]

Sigríður Birna Valsdóttir (Sigga Birna), teymisstýra ráðgjafa, heimsótti Færeyjar á dögunum ásamt Maríu Gunnarsdóttur og Heidi Didriksen frá Trans vinum, hagsmunasamtökum foreldra og aðstandenda trans barna og ungmenna. Tilefnið var boð færeysku samtakanna Foreldur at tvørkyndum (Foreldrar trans barna) á viðburð þeirra Kyn og samleiki í dag – hvat vita vit? (Kyn og sjálfsmynd í dag – hvað vitum við?).

Erindi Siggu Birnu fjallaði um málefni trans ungmenna, helstu áskoranir, lausnir og áhrif kynama á geðheilsu ungmenna. Borgarstjóri Þórshafnar flutti ávarp í upphafi og þá var einnig tónlistardagskrá og upplestur úr nýrri bók rithöfundarins Marjun Syderbø Kjelnæs. Viðburðurinn var vel sóttur og mynduðust góðar umræður eftir erindi Siggu Birnu.

Sigga Birna nýtti ferðina vel, ræddi við foreldra og trans fólk og átti einnig góðan fund með stjórn LGBT+ Föroyar. Hún heimsótti einnig Lögþing Færeyinga þar sem hún átti fund ásamt Maríu og Heidi með Bjørt Lind sálfræðingi á Landspítalanum í Færeyjum sem hefur nýlega tekið sæti á Lögþinginu fyrir Jafnaðarflokkinn.

Sigga Birna hefur sem fjölskyldumeðferðarfræðingur starfað með ungu fólki og fjölskyldum þeirra í um 25 ár en hún hefur verið ráðgjafi hjá Samtökunum ’78 frá upphafi árs 2009. Sigga Birna hefur starfað sérstaklega með trans fólki á öllum aldri innan Samtakanna ’78, haldið utan um fjölda stuðningshópa fyrir trans ungmenni og aðstandendur og auk þess veitt miklum fjölda fagfólks innan mennta-, félags- og heilbrigðisgeirans ráðgjöf um kynvitund og hinseginleika barna og ungmenna.

Sigríður Birna Valsdóttir (Sigga Birna), team leader of counsellors, recently visited the Faroe Islands along with María Gunnarsdóttir and Heidi Didriksen from Trans vinir, an interest group for parents and relatives of trans children and young people. The occasion was an invitation from the Faroese organisation Foreldur at tvørkyndum (Parents of Trans Children) to their event Kyn og samleiki í dag – hvat vita vit? (Gender and Identity Today – What Do We Know?).

Sigga Birna gave a talk on issues concerning trans youth, the main challenges, solutions, and the impact of gender dysphoria on young people’s mental health. Mayor of Tórshavn gave opening remarks and the event also included a musical programme and a reading from a new book by the author Marjun Syderbø Kjelnæs. The event was well attended, and a good discussion followed Sigga Birna’s talk. Sigga Birna made good use of the trip, speaking with parents and trans people, and also had a productive meeting with the board of LGBT+ Føroyar. She also visited the Løgting (the Faroese Parliament), where she, along with María and Heidi, had a meeting with Bjørt Lind, a psychologist at the National Hospital of the Faroe Islands who has recently taken a seat in the Løgting for the Social Democratic Party.

As a family therapist, Sigga Birna has worked with young people and their families for around 25 years, and she has been a counsellor at Samtökin ’78 since the beginning of 2009. Sigga Birna has worked specifically with trans people of all ages within Samtökin ’78, managed numerous support groups for trans youth and their relatives, and has also provided advice on gender identity and the queerness of children and young people to a large number of professionals in the education, social, and health sectors.