Viðstödd eru: Bjarndís, Hannes, Hrönn, Leifur, Vera, Margrét Ása (áheyrnarfulltrúi félagaráðs), Kári (framkvæmdastjóri).
Fundargerð ritar: Vera Illugadóttir
Fundur settur: 16:36
Ný sýn ehf.
Á fundinn koma María Helga Guðmundsdóttir og Sigurður Júlíus Guðmundsson, sem sitja í stjórn félagsins Nýrrar sýnar ehf., sem er í eigu Samtakanna ‘78. Þau segja frá félaginu og stöðu þess í dag. Félagið hefur nú fengið sekt vegna vanskila á ársreikningum undanfarin tvö ár. Stjórn Nýrrar sýnar óskar eftir umboði stjórnar til að leggja félagið niður. Stjórn felur framkvæmdastjóra að fá endurskoðenda til að kanna málið nánar áður en ákvörðun verður tekin.
Yfirferð og samþykkt fundargerðar síðasta stjórnarfundar
Stjórn samþykkir fundargerð síðasta stjórnarfundar.
Alþjóðastarf framundan
Kári segir frá alþjóðastarfi framundan. Kári, Bjarndís og Bergrún fara á ráðstefnu í Kaupmannahöfn í tilefni IDAHOT og hitta norræna kollega. Sigga Birna fer til Færeyja á fund foreldra trans barna. Rói fer á ráðstefnu í Litháen.
Vinnuferð stjórnar og starfsfólks
Vika er í vinnuhelgi stjórnar og starfsfólks og ganga þarf frá undirbúningi. Stjórn ræðir.
Hamingjuhlaup
Það er mánuður í Hamingjuhlaupið. Undirbúningur gengur ágætlega. Kári segir frá.
Blóðgjöf MSM og Blóðbankinn
Bjarndís segir frá samskiptum við heilbrigðisráðuneyti um innleiðingu NAT-skimunar í tengslum við blóðgjöf karla sem stunda kynlíf með körlum. Stefnt er að því að nýjar reglur um blóðgjöf taki loks gildi 1. september næstkomandi. Stjórn ræðir.
Fundi slitið: 17:28.