Fréttir

Ísland aftur í 3. sæti á Regnbogakorti ILGA-Europe

Félögin ILGA-Europe, sem Samtökin ‘78 eru aðili að, og Transgender Europe (TGEU) gefa árlega út hvort sitt yfirlitið á lagalegum réttindum hinsegin fólks í Evrópu og Mið-Asíu.

Regnbogakort ILGA-Europe 2026Í mati Regnbogakorts ILGA-Europe árið 2026 bætir Ísland einu og hálfu stigi við sig milli ára og uppfyllir nú 85.56% matsþátta. Ástæða hækkunarinnar er sú að Ísland uppfyllir nú matsþáttinn um jákvæða aðgerð í málefnum fólks í leit að alþjóðlegri vernd.

Ríkisstjórnin endurnýjaði aðgerðaráætlun í málefnum hinsegin fólks og aðgerð 34 mælti til um fræðslu starfsfólks Útlendingastofnunar. Aðgerðin felst í fræðslu til starfsfólks Útlendingastofnunar frá Samtökunum ’78 og að auki hefur starfsfólk Útlendingastofnunar sótt námskeið á vegum European Union Agency for Asylum (EUAA) um kynhneigð og kynvitund og sérstök námskeið um samskipti við viðkvæma hópa umsækjenda um alþjóðlega vernd.  Engar aðrar breytingar urðu á stöðu Íslands. 

Lesa má um stöðu Íslands og þá þætti sem enn á eftir að uppfylla á sérstakri vefsíðu Samtakanna ’78 um Regnbogakortið. Þau sem fylgjast vel með réttindabaráttunni sjá að blóðgjafir án mismununar vegna kynhneigðar og kynvitundar hafa ekki enn verið metnar inn hjá ILGA-Europe. Þrátt fyrir yfirlýsingar undanfarin ár hefur breytingin ekki enn tekið gildi. Samtökin ’78 vona að þar verði breyting á mjög fljótlega. 

Þá urðu engar breytingar urðu á milli ára á stöðu Íslands á transréttindakorti TGEU, en lagaleg réttindi trans fólks hafa verið þau bestu í Evrópu og Mið-Asíu skv. mati TGEU frá árinu 2023. 

Samtökin ‘78 fagna árangri Íslands í alþjóðlegum samanburði og leggja ríka áherslu á það að við höldum áfram í rétta átt, en skýrslur bæði ILGA-Europe og TGEU sýna skýrt bakslag í réttindamálum hinsegin fólks víða í ríkjum Evrópu og Mið-Asíu. Mikilvægt er að Ísland haldi áfram að sýna gott fordæmi á heimsvísu og stefni enn hærra. Samtökin ‘78 hafa átt í góðum samskiptum bæði við embættismenn og stjórnmálafólk á undanförnum árum, enda teljum við ljóst að samstarf og samtal við stjórnvöld er lykillinn að áframhaldandi árangri á lagalega sviðinu.