FundargerðirStjórn

4. stjórnarfundur 2026

By 7. maí, 2026júní 2nd, 2026No Comments

Viðstödd eru: Bjarndís, Hannes, Hrönn, Jóhannes, Leifur, Sveinn, Vera, Bergrún (skrifstofustjóri), Margrét (áheyrnarfulltrúi félagaráðs)
Fundargerð ritar: Vera Illugadóttir
Fundur settur: 16:36.

1. Yfirferð og samþykkt fundargerðar síðasta stjórnarfundar
Stjórn samþykkir fundargerð síðasta stjórnarfundar.

2. Dagskrá félagsfundar
Framkvæmdastjóri hefur lagt til að félagsfundur að vori verði 28. maí. Engin mótmæli eru við þeirri dagsetningu. Stjórn ræðir hugmyndir að dagskrá fundarins.

3. Hamingjuhlaup
Þörf er á sjálfsboðaliðum fyrir Hamingjuhlaupið um næstu helgi. Einn sjálfboðaliði er kominn úr félagaráði en þeir mættu gjarnan vera fleiri. Stjórn ræðir undirbúning hlaupsins.

4. Áhersla Samtakanna ‘78 á Hinsegin dögum 2026
Ákveða þarf þema Samtakanna í Gleðigöngu Hinsegin daga síðar á árinu. Hugmynd er nefnd að leggja áherslu á Regnbogavini, auglýsa og afla nýrra Regnbogavina og þakka þeim sem fyrir eru. Vel er tekið í þetta og stjórn samþykkir þemað Regnbogavinir. Sérstakur undirbúningsfundur verður um þetta síðar.

5. Önnur mál
a. Stjórn ræðir Regnbogakort ILGA-Europe.
b. Hrönn fer yfir dagsetningar tengdar heimsókn hinsegin hlaupahóps frá Lundúnum til Reykjavíkur í júní.

Fundi slitið: 17:21.