Skip to main content
Fréttir

Judy Garland Kabarett – Tilboð fyrir félagsmenn

By 10. september, 2012No Comments

AUKASÝNING/ÚTGÁFUTÓNLEIKAR Á JUDY GARLAND KABARETT
 
Í tilefni af ný útkomnum diski, með lögum úr sýningunni, blásum við til útgáfufagnaðar og bætum við aukasýningu í Þjóðleikhúskjallaranum í september: sun. 16.09. kl. 20:00
 
Miðaverð fyrir félaga í Samtökunum 78 er 2.500,- kr.
Miðapantanir í síma: 551 1200
 
Nú er kjörið tækifæri til að sjá þessa fínu sýningu
 
kær kveðja Tindilfætt
 
Geisladiskurinn Judy Garland Kabarett er afsprengi samnefndrar sýningar sem var í Þjóðleikhúskjallaranum síðasta vetur. Þar söng leikkonan Lára Sveinsdóttir þekktustu lög Judy Garland ásamt því að bregða sér í nokkur hlutverk og segja sögu hennar Judy.
Lára fékk til liðs við sig frábæra tónlistarmenn og sá Úlfur Eldjárn um flestar útsetningar. Djasshljómsveit Úlfs Eldjárns varð tll en auk Úlfs, sem spilar á alt- og tenórsaxófón, eru í bandinu: Leifur Jónsson á píanó, básúnu og selestu, Birgir Bragason á kontrabassa, Unnur Birna Björnsdóttir á fiðlu, Snorri Sigurðarson á trompet og Óskar Þormarsson á trommur. Gestasöngvari er Björn Hlynur Haraldsson.
Upptökur fóru fram í Sundlauginni síðastliðið vor og sá Elisabeth O. Carlson um upptökur, hljóðblöndun og tónjöfnun með dyggri aðstoð Birgis Jóns Birgissonar.

Leave a Reply