Framboð til stjórnar
Segðu okkur frá þér, hver ertu?
Ég er 38 ára sís lesbía, gift og hundamamma. Ég er uppalin í Reykjavík en ættuð frá Höfn í Hornafirði. Í frítíma mínum hef ég gaman af því að lesa, horfa á íþróttir, helst kvenna íþróttir, spila tölvuleiki, púsla og hlusta á tónlist og hljóðvörp. Ég starfa sem gjaldkeri og verkefnastjóri hjá Eðalfang.
Fyrri störf og reynsla hjá Samtökunum ’78 og hvaða reynslu munt þú koma með inn í Samtökin ’78
Ég var fyrst kjörin í félagaráð og var þá áheyrnarfulltrúi stjórnar hjá Samtökunum 78. Síðustu 2 ár hef ég setið í stjórn, þar af eitt ár sem varaformaður.
Áður fyrr hef ég starfað með samtökunum sem sjálfboðaliði og virkur félagsmaður.
Hvert er mat þitt á stöðu Samtakanna ’78 í dag?
Staða Samtakanna 78 er yfir allt góð. Bakslagið hefur vissulega haft mikil áhrif en samtökin hafa aldrei hætt að róa í átt að bjartari framtíð. Ef ég er kjörin þá vil ég halda áfram að vinna að markmiðum í stefnu stjórnar og tryggja enn betri stöðu Samtakanna 78 í samfélaginu.
Hvað leggur þú höfuðáherslu á þegar kemur að starfi Samtakanna ’78?
Mínar höfuðáherslur eru samfélag og stuðningur. Samtökin eru til staðar þegar okkur líður illa en líka þegar okkur líður vel. Það er svo mikilvægt að við finnum okkar hópa innan samfélagsins og styðjum hvort annað.
Ég man enn eftir því þegar ég labbaði í fyrsta skiptið inn í Samtökin 78 á Laugavegi, skaust hratt inn á bókasafnið og skoðaði það sem var þar því ég var ekki alveg tilbúin að hitta eða ræða við fólk. Það var svo góður andi og mér leið eins og ég væri komin heim. Enda var ég farin að mæta á samtaka böll, pubquiz og bingó kvöld mjög fljótlega eftir mína fyrstu heimsókn.