Framboð til stjórnar
Segðu okkur frá þér, hver ertu?
Ég er menntaður upplýsingafræðingur og safnafræðingur auk þess sem ég kláraði 1 ár í framhaldsnámi við listfræði. Ég skrifaði mastersritgerð í safnafræði um umfjöllun safna um líf hinsegin fólks sem ber heitið „Skyggnst í skápa minjasafna: Hinsegin safnafræði, stefnur samráð og söfn“. Hef starfað meðal annars sem skjalastjóri, hótelstjóri, nótnavörður hjá Sinfó og burlesque dansari.
Fyrri störf og reynsla hjá Samtökunum ’78 og hvaða reynslu munt þú koma með inn í Samtökin ’78
Ég starfaði ásamt fleirum við Gallerí 78 árið 2020 og var sýningarstjóri sýningar Sólveigar M. Jónsdóttur sama ár.
Árið 2022 stýrði ég pallborðsumræðum á Hinsegin dögum sem bar yfirskriftina „Betra seint en aldrei“.
Ég tel að reynsla mín og menntun í upplýsingafræði geti nýst Samtökunum 78 í að bæði skipuleggja og auðvelda aðgengi að mikilvægum upplýsingum samtakanna. Ég hef einnig komið að uppsetningu fjölmargra kabarettsýninga sem ég hef trú á að geti komið að notum í skipulagningu hinna ýmsu viðburða sem Samtökion 78 standa fyrir.
Hvert er mat þitt á stöðu Samtakanna ’78 í dag?
Ég hef mikla trú á því fólki sem hefur staðið vaktina undanfarin ár fyrir okkar góðu Samtök og hef verið stolt af því hvernig staðið hefur verið að málum í því bakslagi sem við höfum verið að berjast gegn. Mig hefur lengi langað til þess að leggja mitt af mörkum til hinsegin samfélagsins. Ég eins og flest hinsegin fólk hér á landi og erlendis hef fundið á eigin skinni fyrir bakslaginu og nú lítur út fyrir að erfiðir tímar séu framundan. Miðað við skoðanakannanir um fylgi stjórnmálaflokka hér á landi tel ég að mikilvægt sé að halda rétt á spöðunum, vera við öllu búin, skipuleggja okkur vel og umfram allt hugsa vel um fólkið okkar.
Hvað leggur þú höfuðáherslu á þegar kemur að starfi Samtakanna ’78?
Ég legg áherslu á að standa vörð um réttindi okkar hinsegin fólks í því sívaxandi bakslagi sem við erum að upplifa, bæði í okkar nærsamfélagi sem og erlendis. Ég myndi einnig vilja taka þátt í að hlúa að og skapa hlýlegt og styðjandi umhverfi þar sem hinsegin fólk getur komið við og tekið hlé frá því öráreiti sem aðeins við sem tilheyrum þessum hópi skiljum.