Fundargerð
Föstudagur 6. mars kl. 17
Aðalfundur Samtakanna ‘78
17.00: Skipan fundarstjóra og fundarritara
Bjarndís Helga Tómasdóttir formaður opnar fundinn og býður gesti velkomna.
Lagt til að Guðmundur Ingi Guðbrandsson taki við fundarstjórn
Hilmar Hildar Magnúsar ritar fundinn. Samþykkt samhljóða.
17.05: Lögmæti aðalfundar staðfest
Fundarstjóri staðfestir lögmæti
Fundartími afmarkaður við tvær mínútur.
Samþykkt.
Lögmæti fundar er kannað. Enginn hreyfir mótmælum. Fundurinn er lögmætur.
17.08: Ársskýrsla fyrra starfsárs
Fundarstjóri kynnir formann inn:
Bjarndís Helga Tómasdóttir formaður kynnir skýrslu. Bjarndís segir skýrsluna til á netinu. Skýrsla – en líka söguleg geymd.
Nýbreytni að vera með myndir í skýrslunni. Sagt frá ferðum stjórnar og starfsfólks. Umbótaaðgerðir í starfinu. Samskipti við félög. Húsnæðismál. Eiginlega ekkert sem þarna er ekki að mati formanns. Þetta sé mikil skemmtilesning. Stiklað á stóru. Ný stefna stjórnar sem verður farið í nánar á eftir.
Fundarstjóri gefur orðið laust.
Steinar spyr um kostnað við útgáfu ritsins. Framkvæmdastjóri gerir grein fyrir kostnaði síðar á fundinum. Býður Bjarndísi að kynna stefnudrög sem eru lögð fram til kynningar.
17.15: Ný stefna Samtakanna ‘78 kynnt
Bjarndís Helga Tómasdóttir formaður kynnir stefnu
Sl. haust var tekin ákvörðun um að fara í stefnumótun. Stjórn og félagaráð hittust yfir helgi, leitt af Kristínu og Brynjari, ráðgjöfum. Gagnleg helgi. Mörg sjónarmið frá fólki sem hefur ástríðu fyrir starfinu og þekkir það.
Í framhaldinu var opinn fundur fyrir félagsfólk, svipuð vegferð og innri fundurinn. Inga Auðbjörg leiddi vinnuna. Eftir áramót tók Hrönn Pétursdóttir við keflinu og tók saman allt efnið og vann úr því.
Í framhaldinu var fundað 4-5 sinnum og farið í gegnum efnið og það fínpússað. Formaður segir stefnuna þurfa að vera skýra en að þar sé aldrei rými til að fara í alla hluti. Formaður sýnir glærukynningu og bendir á síðu 12 í ársskýrslunni. Oft sé farið í gildavinnu en það hafi verið gert 2020 og fólk væri að mestu leyti samþykkt því. Fer yfir framtíðarsýn og hlutverk.
Formaður fjallar um meginþætti stefnunnar, sýnileika og samfélagslega tilheyringu. Fjallar um áherslur sem lúta að því að standa vörð um réttindi hinsegin fólks, þar sem leiðirnar séu útlistaðar, s.s. varðandi baráttu og þekkingarvarðveislu.
Stjórnin muni svo útfæra starfsáætlun út frá stefnunni. Það sé mjög góður vegvísir. Býðst til að fara lið fyrir lið yfir stefnuna. Gerir það snögglega. Fjallar m.a. um velferð hinsegin fólks og rekstur og innra starf sem styðji við vænta starfsemi.
Formaður lýkur máli sínu og fundarstjóri þakkar fyrir og opnar fyrir umræður.
Ynda Eldborg fagnar frá dýpstu hjartarótum að það eigi að styðja við menningu hinsegin fólks. Segir mikilvægt að virkja þá skapandi orku sem finna megi í hinsegin samfélaginu.
Steinar segir orð eitt, en starfsemin byggi á fjármagni. Máli skipti hver stemningin sé hverju sinni á stjórnmálasviðinu.
Formaður segir markmið félagsins að vera fjárhagslega sjálfbært en að auðvitað sé líka aflað fjár með öðrum leiðum, s.s. opinberum stuðningi. Falli hann niður megi það ekki verða til þess að hefta starfið.
Formaður minnir á landsþingið á morgun og hvetur fólk til að mæta og ræða þessi mál í þaula.
Fundarstjóri kynnir gjaldkera, Jóhannes Þór Skúlason, og býður honum að kynna ársreikning.
Fundarstjóri segir kostnað við útgáf ársskýrslu ekki liggja fyrir enn sem komið er.
17.25: Áritaðir reikningar fyrra árs kynntir og bornir upp til samþykktar
Fundarstjóri kynnir gjaldkera inn:
Jóhannes Þór Skúlason gjaldkeri kynnir
Ársreikningur liggur fyrir og hefur verið endurskoðaður. Bendir á að hægt sé að fylgjast með yfirferðinni á netinu.
Heildartekjur um 156 m.kr. Sem er 39 m.kr. minna en á fyrra ári. Skýrist af lækkuðum opinberum fjárframlögum sem bókfærð voru á rekstrarárinu. Hluti samnings við ríki er tekjufærður á árinu 2026 sem skýrir hluta mismunar.
Gjöld hafa lækkað um 38 m.kr. í rúmar 158 m.kr.
Tekist hafi að lækka kostnað við fjáröflun.
Niðurstaða er tap upp á tæpar 7,5 m.kr. og skammtímaskuldir um 5,5 m.kr. en unnið hafi verið að því markvisst að lækka þær.
Eigið fé félagsins er neikvætt um 18 m.kr. á árinu 2025 en félagið sé í eigin húsnæði og um engar langtímaskuldir að ræða. Yfirdráttur hafi verið greiddur niður frá áramótum og standi nú í 6 m.kr.
Fundarstjóri þakkar fyrir og gefur orðið laust.
Sæþór Randalsson spyr um styrk upp á 65 m.kr. Og hvort um sé að ræða erlenda aðila.
Gjaldkeri segir þetta mest vegna Regnbogavina og ekki af erlendum uppruna. Styrkir frá almenningi og fyrirtækjum.
Fleiri taka ekki til máls.
Fundarstjóri ber reikninginn upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða og með lófataki.
17.35: Fjárhagsáætlun ársins lögð fram
Jóhannes Þór Skúlason gjaldkeri kynnir fjárhagsáætlun 2026.
Opinber framlög séu áætluð 79 m.kr. en aukin áhersla sé á ungmennastarf sem sé mjög ánægjulegt. Að öðru leyti sé áætlunin á svipuðum nótum og verið hefur. Gert sé ráð fyrir 13 m.kr. afgangi frá rekstri á árinu.
Fundarstjóri gefur orðið laust fyrir athugasemdir en engar berast.
17.45: Laga- og stefnuskrárbreytingar
Fundarstjóri
Fyrir fundinum liggja tvær lagabreytingartillögur:
Auk þeirra bárust 3 breytingar of seint en vilji stjórnar standi til að taka þær á dagskrá og verði leitað afbrigða um hverja og eina þegar fyrstu tvær hafi verið afgreiddar.
Fyrsta tillaga: Félagið heitir Hinsegin Ísland – Félag hinsegin fólks á Íslandi og hefur aðsetur í Reykjavík.
Fundarstjóri les upp tillgöguna og býður tillöguhöfundum að skýra tillöguna.
Kolbrún Ósk, f.h. Heiðrúnar, flytur rökstuðning.
Þorvaldur Kristinsson tekur til máls.
Segir tillöguna ekki flutta af stjórn. Þorvaldur telur ekki rétt að horfa til dönsku samtakanna og starfsemi þeirra hafi ekki verið til eftirbreytni. Hann vilji heldur horfa til þeirra finnsku og sænsku. Fjallar um skammstafanir þeirra sem hann segir leyninöfn. Ekki hvarfli að þeim að breyta nöfnunum. Spyr hvers vegna og segir það vegna þess að þetta séu sterk vörumerki sem vísi í menningarlegt auðmagn, rétt eins og finna megi hjá S78. Vísar til Egils maltöls og slagorða Ölgerðarinnar um hraustlegt yfirbragð. Uppsker hlátur. Ræðir um nöfn stjórnmálaflokka. Þeir breyti ekki nöfnum – frekar undirtitlum. Sama eigi við um S78 og að hann voni að nafn samtakanna lifi áfram.
Erna Björk Árnadóttir
Tekur undir með Þorvaldi varðandi vörumerkið. Finnst rautt flagg að vísa svona mikið til Íslands í yfirstandandi þjóðernisbylgju.
Hörður Torfason
Segist vera höfundur nafnsins S78. Þetta sé sögulegt og styður að nafnið sé óbreytt.
Alexandra Briem segir virði í nafni félagsins og hversu þekkt það sé. Þetta sé skírskotun í stofnár og sögu. Segir tillögu um nýtt nafn ekki fallega.
Fleiri kveðja sér ekki hljóðs
Gengið er til atkvæða um tillöguna.
Hafnað samhljóða. Innsiglað með lófaklappi.
Önnur tillaga fjallar um að formaður sé kjörinn til tveggja ára.
3.4. Kosningar fara fram í þrennu lagi í þessari röð: 1) kjör formanns til tveggja ára.
Leifur Örn Gunnarsson tillöguhöfundur gerir grein fyrir tillögunni.
Finnst skrýtið að formaður þurfi að sanna sig á hverju ári og telur að treysta ætti honum til að vera kosinn til tveggja ára.
Alexandra Briem fjallar um B-hlutafélög Reykjavíkurborgar til viðmiðunar. Almennt gæti verið sniðugt að lengja tímann úr einu ári í tvö.
Fleiri taka ekki til máls og fundarstjóri lokar mælendaskrá.
Samþykkt með 36 atkvæðum gegn 6. Innsiglað með lófataki.
Afbrigði
Afbrigði 1 – Fjölga félögum í félagaráði
Fundarstjóri les tillöguna upp.
3.4. Kosningar fara fram í þrennu lagi í þessari röð: 1) kjör formanns til eins árs; 2) kjör þriggja einstaklinga í stjórn til tveggja ára; 3) kjör að lágmarki fimm, en að hámarki tíu, einstaklinga í sæti félagaráðs til eins ár;
Fundarstjóri býður flutningsmanni að skýra tillöguna. Bjarndís tekur til máls.
Bjarndís formaður segir félagaráð hafa verið hálfgert olnbogabarn í gegnum tíðiðina en virkja þurfi fleiri félaga sem hafi sýnt vilja til að leggja hönd á plóg. Klappað.
Fundarstjóri biðst afsökunar á mistökum og óskar eftir leyfi fundarins til að taka málið á dagskrá.
Samþykkt samhljóða.
Býður fundarfólki að gera athugasemdir
Jón Hjalti spyr hvernig eigi að framkvæma kosningu í félagaráð ef óvíst sé hversu mörg eigi að sitja í því.
Bjarndís: Ef 10 eða færri bjóða sig fram yrðu sjálfkjörið – annars kosið.
Fundarstjóri: Alltaf hægt að fara fram á leynilega kosningu.
Bjarndís: Markmiðið er að gefa sveigjanleika. Lágmarkið tryggi að það sé starfandi félagaráð.
Ynda: Þyrfti þá ekki að skilgreina umgjörðina um kosninguna í ráðið?
Fundarstjóri svarar: Ekkert öðruvísi en að það væru fimm. Ef fimm eða færri. Þá ekki kosning. Sama gildir um ef fleiri en tíu. Þá kosið. Ef fjöldinn væri þar á milli, þá einfaldlega náist ekki
Bjarndís óskar eftir að breytingin taki gildi strax.
Fundarstjóri: Tökum þetta í tvennu lagi
Er vilji til að breyta þessu í samræmi við tillöguna? Les tillöguna aftur upp.
Gengið til kosningar. 42 með 2 á móti.
Er vilji til þess að þetta öðlist gildi strax.
40 með enginn á móti
Tillagan í heild sinni borin upp.
Ábending um að telja þurfi þá sem sitja hjá.
Fundarstjóri: Réttmætt ábending.
Tillagan borin upp í heild. 45 með. 3 sitja hjá.
Afbrigði 2
Fundarstjóri les tillöguna og ber undir fundinn hvort vilji sé til að taka hana á dagskrá.
Samþykkt samhljóða.
Gengið til umræðu um tillöguna sem felur efnislega í sér að út falli talan 5 aftar í lögunum til samræmis við fjölgun í félagaráði.
Fundarstjóri ber upp tillöguna.
Samþykkt samhljóða.
Afbrigði 3
Fundarstjóri les tillöguna upp. Efnislega gengur hún út á að ekki þurfi lengur að auglýsa aðalfund í útvarpi.
Fundarstjóri spyr hvort fundarfólk vilji taka tillöguna á dagskrá.
Með: 37
Móti: 1
Opnar umræður um tillöguna.
Ynda Eldborg: Ótækt að fella þetta út. Útvarpið eigi ríkan þátt í sögu hinsegin samfélagsins sem rétt sé að varðveita.
Bjarndís Rekur ástæðu tillögunnar. Málið snúist um kostnað. Það sé mjög dýrt að auglýsa í útvarpi.
Erna Björk Árnadóttir setur spurningarmerki við aðgengi falli þetta út.
Ynda leggur fram breytingartillögu um að bæta við sjónvarpsauglýsingu, leikna.
Uglu Stefaníu þykir vænt um að auglýsa í útvarpi og leggst gegn breytingu.
Leifur tekur undir
Umræðu lokið. Gengið til kosninga.
Breytingartillagan um að bæta við sjónvarpsauglýsingu gengur lengra. Kosið er fyrst um hana.
Fylgjandi: 1
Á móti: 35
Tillagan er tekin til atkvæðagreiðslu óbreytt.
Fylgjandi: 11
Á móti: 24
Tillagan er felld.
Lagabreytingartillögum lokið.
18:05 Kosning til stjórnar
Fundarstjóri fjallar um kosningu til stjórnar og segir hana hafa hafist kl. 17. Býður fulltrúa kjörnefndar að taka til máls.
Kolbrún Pétursdóttir lýsir aðdraganda og fyrirkomulagi kosningarinnar. Þetta séu leynilegar rafrænar kosningar sem ekki sé hægt að rekja til einstaka félaga. Óski einhver eftir að kjósa á blaði megi þau nálgast formann kjörstjórnar núna.
Formaður Bjarndís Helga Tómasdóttir er ein í kjöri og sjálfkjörin.
Þrjú stjórnarsæti til tveggja ára.
Kolbrún býður frambjóðendum að kynna sig.
Erna Björk: Félagið skiptir mig miklu máli. Vil leggja mitt af mörkum og mikilvægt að hafa úrval til að kjósa um.
Hrönn Svansdóttir: Langar að halda áfram starfi við stefnumótun og auðvitað baráttunni gegn mótlæti.
Margrét Á Jóhannsdóttir: Hef tíma til að leggja af mörkum og leggja hönd á plóg.
Sveinn Ísarr Kjartansson: Segir deili á sér. Giftur hommi. Öldungurinn í hópnum. Mikla reynslu og sögu, m.a. af HIV baráttunni.
Vera Illugadóttir: Hefur setið í stjórn. Langar að gera meira en að vera ritari. Miklir umbrotatímar. Félagið sé að komast á betri stað. Hana langi að fylgja því eftir.
Formaður kjörstjórnar lýsir kosningu opna til 18:35. Ef einhver hér sem hafi hug á framboði í félagaráð þá vinsamlegast láti vita núna.
Fundarstjóri hrósar frambjóðendum og segist aldrei hafa upplifað í sínu félagsstarfi að þeir haldi sig svona vel innan tímamarka. Fundarstjóri sé því komin á síðustu blaðsíðu í handriti fundarins.
Fundarstjóri gerir 13 mínútna hlé á fundinum til að gefa þeim sem mögulega nái ekki kjöri í stjórn og vilji bjóða sig fram til félagaráðs tækifæri til þess.
18:38
Fundarstjóri setur fund að nýju og segir kosningu til stjórnar lokið. Hann býður
formanni kjörstjórnar að tilkynna um úrslit kosningar til stjórnar.
Vera 132 atkvæði (þar af 3 á pappír)
Sveinn 129 atkvæði (þar af 3 á pappír)
Hrönn Sveinsdóttir 100 atkvæði (þar 4 á pappír)
Erna 44 atkvæði
Margrét 43 atkvæði
Kosning í félagaráð
Formaður kjörstjórnar les upp þau sem eru í kjöri til félagaráðs.
Anna Katrín Guðdísardóttir
Anna Björg Kjartansdóttir
Arndís Björk Marínósdóttir
Jón Hjalti Eiríksson
Jón Ingvi Ingimundarson
Kristín Rós Birgisdóttir
Margrét Á Jóhannsdóttir
Ragnar Pálsson
Sigríður Ösp Elinborgar Arnarsdóttir
Steinar Svan Birgisson
Þórarinn Snorri Sigurgeirsson
Verkefnastjóri aðalfundar tilkynnir að hlé hafi verið gert á kosningu og hún ógild vegna tæknilegra annmarka. Verið sé að lagfæra kerfið og opnað að nýju fyrir kosningu innan skamms. Nýr tölvupóstur er sendur út til fundargesta.
Fundarstjóri biður fundargesti að hinkra meðan verið sé að lagfæra tæknilega annmarka. Kosning sé ekki virk.
Umræður – létt hjal.
Fundarstjóri segir engar umsóknir um hagsmunaaðild og segir þann fundarlið því falla niður.
Verkefnastjóri aðalfundar útskýrir hvað er verið að gera og hvernig fyrirkomulagið verður varðandi framhald kosningar.
Kosning hefst að nýju.
18:48 Fundarstjóri bendir þeim fundargestum sem séu í vandræðum með að kjósa á að koma að borði verkefnastjóra aðalfundar og fá aðstoð. Verkefnastjóri útskýrir fyrirkomulag kosningarinnar fyrir fundinum og fer yfir það á skjá yfir sviði.
18:51 Fundarstjóri ítrekar aðstoð við fundargesti, séu einhverjir enn í vandræðum.Verkefnastjóri tilkynnir að kosningu ljúki kl. 18:55.
18:55 Formaður kjörstjórnar og verkefnastjóri aðalfundar segja kosningum lokið.
Niðurstöðum verði nú varpað upp á skjá yfir sviði.
Anna Katrín Guðdísardóttir
Anna Björg Kjartansdóttir
Arndís Björk Marínósdóttir
Jón Hjalti Eiríksson
Jón Ingvi Ingimundarson
Kristín Rós Birgisdóttir
Margrét Á Jóhannsdóttir
Ragnar Pálsson
Sigríður Ösp Elinborgar Arnarsdóttir
Þórarinn Snorri Sigurgeirsson
18:57 Önnur mál
Fundarstjóri þakkar kjörstjórn fyrir og opnar liðinn önnur mál. Gefur orðið laust.
Vilhjálmur Ósk spyr um viðtöl við kynsegin fólk, eða skort á þeim í fjölmiðlaskýrslu.
Alexandra Briem bendir á að tekið var viðtal við formann Pírata sem er kynsegin.
Framkvæmdastjóri og Þorbjörg ræða málin við fundarfólk
Vilhjálmur: Mikilvægt að komi fram hvernig sé spurt. Þetta sé mikilvægt fyrir sagnfræðinga framtíðarinnar. Var þetta ekkert kannað eða fellt undir önnur kyn?
Fundarstjóri spyr hvort fleiri vilji taka til máls. Svo er ekki.
19:00 Fundarstjóri býður formanni að koma í pontu og slíta fundi.
Formaður segir fundi ekki almennilega nema eitthvað bras með kosningu komi upp.
Formaður þakkar fundarstjóra og fundarritara fyrir sín störf og færir þeim blóm.
Formaður þakkar Snærós verkefnastjóra og færir henni blóm.
Formaður hvetur fólk til að taka þátt í landsþinginu á morgun.
Formaður þakkar fyrir og slítur fundi kl. 19:04