AlmenntFréttirTilkynning

Aðalfundur, stjórnarkjör og lagabreytingatillögur

By 5. febrúar, 2026No Comments

Kæra félagsfólk

Aðalfundur Samtakanna ’78 fer fram í Iðnó föstudaginn 6. mars kl 17.00

Frestur til að skila inn lagabreytingatillögum fyrir Aðalfund rennur út á miðnætti föstudaginn 6. febrúar. 

Frestur til að bjóða sig fram í stjórn Samtakanna ’78 rennur út á miðnætti föstudaginn 13. febrúar. 

Á nýrri og uppfærðri heimasíðu Aðalfundarins má gera hvorutveggja en einnig kynna sér dagskrá fundarins, framboð til stjórnar o.m.fl.

Á næstu dögum og vikum verða Ársskýrsla og Ársreikningur Samtakanna ’78 aðgengileg á heimasíðunni.

Dagskrá fundarins: 

Skipan fundarstýris og fundarritara
Lögmæti aðalfundar staðfest
Ársskýrsla fyrra starfsárs
Ný stefna Samtakanna ’78 kynnt af formanni

Áritaðir reikningar fyrra árs kynntir og bornir upp til samþykktar
Fjárhagsáætlun ársins lögð fram
Laga- og stefnuskrárbreytingar
Kjör til formanns
Kjör til stjórnar
Kjör í félagaráð
Kjör skoðunarmanna reikninga
Afgreiðsla umsókna um hagsmunaaðild
Önnur mál

 

 

Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest á Aðalfundi Samtakanna 78 2026.
Vinnum saman að hag félagsins okkar!