Aðalfundur Hinsegin bíódaga verður haldinn 30. apríl kl. 17:30 í félagsheimili Samtakanna ´78, Laugavegi 3.
Dagskrá
1. Kosning fundarstjóra og fundarrita
2. Skýrsla stjórnar
3. Áritaðir reikningar fyrra árs
4. Staðfesting á tilnefningu í nýja stjórn
5. Lagabreytingar
6. Önnur mál
Rétt til fundarsetu hafa allir félagsmenn aðildarfélaganna – FSS og Samtakanna ´78 með gilt félagsskírteini. Hafa þeir málfrelsi og tillögurétt en ekki atkvæðisrétt. Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa allir fulltrúar fráfarandi og nýrrar stjórnar, en aðildarfélögin skipa hvort um sig tvo fulltrúa í stjórn.
-Stjórn Hinsegin bíódaga