Fréttir

Endurnýjun samninga við sveitarfélög

By 27. mars, 2026No Comments

English below.

Á síðastliðnum misserum hafa Samtökin ’78 samið við nokkurn fjölda sveitarfélaga um fræðslu og ráðgjöf.

Í haust var undirritaður þriggja ára samningur við Reykjavíkurborg. Sá samningur er umfangsmeiri en samningurinn sem gerður var til eins árs fyrir rúmu ári. Samtökin ’78 munu því áfram sinna fræðslu á öllum skólastigum í borginni og er samið til lengri tíma líkt og venjan hafði verið áður.

Á sama tíma hafa Samtökin ’78 einnig endurnýjað samninga sína við fleiri sveitarfélög, þar á meðal Garðabæ, Hafnarfjörð, Múlaþing og Fjarðabyggð, um fræðslu og samstarf.

Í fyrsta sinn hafa Samtökin ’78 einnig gert samninga við Kópavogsbæ og Seltjarnarnes. Aldrei áður hafa þessi tvö sveitarfélög verið í samningssambandi við Samtökin ’78. Það þýðir að nú bjóða öll sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu upp á hinsegin fræðslu fyrir nemendur og starfsfólk sitt.

Over the past several weeks, Samtökin ’78 has entered into agreements with a number of municipalities on education and counselling.

This autumn, a three-year agreement was signed with the City of Reykjavík. That agreement is more extensive than the one-year agreement signed just over a year ago. Samtökin ’78 will therefore continue to provide education across all school levels within the city, and the agreement has once again been made for a longer term.

At the same time, Samtökin ’78 has also renewed its agreements with additional municipalities, including Garðabær, Hafnarfjörður, Múlaþing and Fjarðabyggð, regarding education and collaboration.

For the first time, Samtökin ’78 has also entered into agreements with Kópavogur and Seltjarnarnes. These two municipalities have never before been in a contractual partnership with Samtökin ’78. This means that all municipalities in the Capital Region now offer queer education for their students and staff.