FélagsfundurFundargerðirStjórn

Félagsfundur að hausti, 2025-2026

By 9. nóvember, 2025mars 2nd, 2026No Comments

Fundi stýrir: Ragnhildur Sverrisdóttir 

Fundargerð ritar: Vera Illugadóttir

Fundur settur: 14:35. 

 

  1. Starfsfólk fundarins 

Bjarndís Helga Tómasdóttir formaður Samtakanna ‘78 setur fundinn og tilnefnir Ragnhildi Sverrisdóttur í hlutverk fundarstjóra og Veru Illugadóttur í hlutverk ritara. 

 

  1. Lögmæti fundarins staðfest

Félagsfund skal boða skriflega með að minnsta kosti viku fyrirvara og var það gert á vef félagsins 20. október, ásamt því að fundurinn var auglýstur á samfélagsmiðlum félagsins 28. október. Á fundinum voru fleiri en fimmtán einstaklingar þegar hann var settur. 

 

  1. Ræða formanns

Bjarndís Helga Tómasdóttir, formaður Samtakanna ‘78, flytur erindi.

 

  1. Yfirferð framkvæmdastjóra

Kári Garðarson, framkvæmdastjóri Samtakanna ‘78, fer yfir verkefna- og fjárhagsstöðu. 

 

  1. Kosning kjörnefndar

Þrjú framboð bárust í kjörnefnd Samtakanna ‘78:

Alexandra Briem

Kolbrún Ósk Pétursdóttir

María Thorlacius.

Fleiri framboð bárust ekki á fundinum og eru þær þrjár því sjálfkjörnar í kjörnefnd. Félagsfundur samþykkti kosninguna með lófataki.

 

  1. Aðgerðaáætlun gegn áreitni, einelti og ofbeldi

Haustið 2024 var ráðist í endurskoðun á aðgerðaáætlun Samtakanna ‘78 gegn áreitni, einelti og ofbeldi. Fagráð Samtakanna vann að því ásamt lögfræðingi. Stjórn Samtakanna samþykkti áætlunina á fundi sínum 4. nóvember. Kári Garðarson framkvæmdastjóri kynnir aðgerðaáætlunina. 

Auglýst var að Sonja Þorbergsdóttir, formaður BSRB, myndi ávarpa fundinn. Hún forfallast.

 

  1. Önnur mál

Hans Margrétarson Hansen spyr um ástæðu þess að staða fræðslustýris Samtakanna hafi verið lögð niður. Kári framkvæmdastjóri fer yfir stöðu fræðslumála hjá Samtökunum, en fræðslustarf heldur áfram. 

Hlynur Kristjánsson spyr hvers vegna ekki hafi verið farið í hagræðingaraðgerðir eða athygli vakin á fjárhagsstöðu Samtakanna í fjölmiðlum áður en ráðist var í uppsagnir á skrifstofu. Bjarndís segir að ráðist hafi verið í margar hagræðingaraðgerðir en um háar fjárhæðir sé að ræða. Ekki hafi verið farið í uppsagnir með léttum hug. Frekari umræður eru um fjárhag Samtakanna og stefnu núverandi ríkisstjórnar og fyrrverandi. 

Hlynur spyr ennfremur um stöðu fræðslumála í grunnskólum. Bjarndís og Kári fara yfir það. Fræðslumál eru jafn mikilvæg og fyrr og enginn vilji til að slá slöku við þar.

Stefán Sigfinnsson spyr um stefnu Samtakanna í húsnæðismálum. Kári fer yfir. Það er lítið að frétta af húsnæðismálum.

Ólafur Snævar spyr um viðburði á Suðurgötu 3. Bjarndís segir að til standi að gera Suðurgötuna að enn meira félagsrými en nú er.

Ynda Eldborg leggur til að reist verði minnismerki um Íslendinga sem létust úr alnæmi fyrir háfrar aldar afmælisár Samtakanna ‘78. Þessu er vel tekið á fundinum. Bjarndís hvetur félagsfólk til að hafa samband hafi það hugmyndir fyrir afmælisárið. 

Fundi slitið: 15:33.