Stjórn Samtakanna ’78 boðar til félagsfundar fimmtudaginn 17.nóvember klukkan 20-22 í Regnbogasal S78 að Laugavegi 3
Fundarefni:
1. Drög að fjárhagsáætlun – umræður
2. Starf Samtakanna ´78 það sem af er félagsári
3. Húsnæðismál Samtakanna ´78
Á fundinum gefst félagsmönnum þá færi á að koma með athugasemdir, hrós, ábendingar, knús og/eða aðrar tillögur til bóta. Þá má einnig bjóða fram krafta sína í þágu félagsins en eins og við vitum öll er megnið af starfi félagsins unnið af sjálfboðaliðum (þar með talið stjórnarstörf)
Bestu kveðjur og vonandi sjáum við bara sem flesta á fundi
Stjórnin