Viltu stuðla að aukinni þekkingu og skilningi á málefnum hinsegin fólks?
Samtökin ’78 leita að fræðurum til að ganga til liðs við fræðsluteymið okkar!
Fræðarar Samtakanna heimsækja skóla, íþróttafélög, stofnanir og fyrirtæki og fræða um hinsegin málefni á aðgengilegan og fordómalausan hátt – m.a. um kynhneigð, kynvitund, kyneinkenni, fjölbreytileika og mikilvægi þess að koma af virðingu fram við allt fólk. Samtökin ‘78 sinna hinsegin fræðslu um allt land og leitum við því að fræðurum í teymið okkar óháð búsetu.
Við leitum að fólki sem:
- Hefur brennandi áhuga á mannréttindum og hinsegin málefnum
- Hefur góða samskiptahæfni og hæfileika að koma fram fyrir framan hópa
- Er sveigjanlegt og tilbúið að sækja þjálfun hjá Samtökunum ’78
Við bjóðum:
- Tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif
- Þjálfun og stuðning
- Sanngjarnar verktakagreiðslur
- Hlýlegt og styðjandi starfsumhverfi
📅 Umsóknarfrestur: 1. nóvember 2025
📨 Umsóknir og fyrirspurnir: kari@samtokin78.is
🔗 Nánar: https://samtokin78.is/starfsemin/um-fraedsluna/
Samtökin ’78 hvetja öll þau sem áhuga hafa og fólk með fjölbreyttan bakgrunn til að sækja um.


