Nú liggur fyrir á Alþingi stjórnarfrumvarp um breytingar á hjúskaparlögum. Nái frumvarpið fram að ganga, óbreytt, verða hér eftir einungis ein hjúskaparlög í landinu sem gilda fyrir alla óháð kynhneigð fólks. Þetta yrði mikilvægt skref og tryggir að samkynhneigð pör sitja loks við sama borð og gagnkynhneigðir og geti gengið í hjónaband.
Áhugasamir eru hvattir til þess að heimsækja heimasíðu Alþingis og kynna sér breytingarnar. Frumvarpið má finna á eftirfarandi vefslóð: