Tilkynningar Næsti fundur hjá ÁST verður sunnudaginn 20. febrúar klukkan 17.00 í félagsheimili Samtakanna ´78, Laugavegi 3. Sérstakur gestur dagsins verður Einar Sigurbjörnsson prófessor við Guðfræðideild Háskóla Íslands. Erindi hans nefnist: ?Konúngstign Jesú samkvæmt Passíusálmunum: Er hún gagnrýni á vald, eða boðar hún undirgefni??.
Áhugahópur samkynhneigðra um trúarlíf er ekki bara fyrir þá er játa kristna trú heldur alla sem áhuga hafa á trúmálum, hverrar trúar sem þeir eru. Við hvetjum alla sem áhuga hafa að koma á fundi okkar og fræða okkur um sína trú og sína afstöðu til hennar og annarra trúarbragða.
-Áhugahópur samkynhneigðra um trúarlíf – ÁST