Skip to main content
FréttirHinsegin dagarSaga

Gleðilega Gleðigöngu – baráttan heldur áfram

By 12. ágúst, 2017maí 28th, 2020No Comments

Í dag verður Gleðigangan, stoltsganga hinsegin fólks á Íslandi, gengin í nítjánda sinn. Undanfarna daga hefur hinsegin samfélagið fagnað menningu sinni og margbreytileika, eflt samstöðu sína og glaðst yfir þeim árangri sem náðst hefur í baráttunni fyrir réttlátari heimi.

Og árangurinn er svo sannarlega eftirtektarverður. Þrotlaus barátta og fræðslustarf margra kynslóða hinsegin fólks hefur dregið úr fordómum og fáfræði og knúið fram mikilvægar réttarbætur og viðhorfsbreytingar. Þegar hinsegin fólk tók í fyrsta sinn þátt í kröfugöngu, 1. maí 1982, voru aðeins tveir hommar, brautryðjendurnir Guðni Baldursson og Helgi Viðar Magnússon, sem treystu sér til að taka þátt – og var ekki vel tekið af skipuleggjendum. Í dag samgleðst nærri þriðjungur þjóðarinnar hinsegin samfélaginu með þátttöku í hátíðahöldunum og ráðherrar, borgarstjóri, forseti Íslands, fyrirtæki og fjölmiðlar taka virkan þátt í gleðinni.

En baráttunni er ekki lokið og Gleðigangan er hvort tveggja í senn: hátíð og kröfuganga. Samtökin ’78 taka þátt í Gleðigöngunni í ár til að minna á að löggjöf um réttindi hinsegin fólks á Íslandi er úr öllum takti við tímann. Á Regnbogakortinu 2017, árlegri úttekt Evrópusamtaka hinsegin fólks, ILGA-Europe, á lagalegu umhverfi hinsegin fólks í Evrópu fær Ísland aðeins 47% – falleinkunn. Þetta er skammarlega lágt fyrir þjóð sem getur og vill vera til fyrirmyndar.

Samtökin ’78 fagna stuðningi forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, félags- og jafnréttisráðherra, heilbrigðisráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við Hinsegin daga. Við erum viss um að þeim þætti jafn gaman og okkur að fagna ágætiseinkunn á Regnbogakortinu á fertugsafmæli Samtakanna ’78 næsta sumar.

Nú er tækifærið. Með samhentu átaki getum við komið á löggjöf sem bannar hvers kyns mismunun gagnvart hinsegin fólki, tryggir sjálfræði allra yfir líkama sínum, kyneinkennum og kyni, tekst markvisst á við hatursglæpi og hatursorðræðu og tryggir að hinsegin hælisleitendur fái hér tækifæri til að hefja nýtt og öruggara líf.

Við skorum því á Alþingi og ríkisstjórn að koma Íslandi aftur í fremstu röð veturinn 2017-18 og erum boðin og búin að vinna með þeim að því markmiði.

Samtökin ‘78 óska stjórn og sjálfboðaliðum Hinsegin daga til hamingju með frábæra hátíð og öllum þátttakendum nær og fjær til hamingju með Hinsegin daga. Sjáumst í miðbænum á eftir og göngum ótrauð saman til móts við betri heim!

Reykjavík, 12. ágúst 2017

María Helga Guðmundsdóttir
formaður Samtakanna ’78

 

Leave a Reply