Laugardagskvöldið 1. nóvember næstkomandi standa Samtökin ´78 í samstarfi við Iceland Express, Iðu, Partýbúðina, Toy´s for Us og Tunglið fyrir Hrekkjavökuballi. Ballið fer fram á Tunglinu sem umbreytist í tilefni kvöldsins. Gestir eru sérstaklega hvattir til þess að klæða sig upp í anda hrekkjavökunnar. Þeir sem mæta í búningum fá glaðning* á barnum. Iceland Express gefur flugmiða í verðlaun fyrir bestu búningana/gervið og Iða gefur aukaverðlaun fyrir aðra sem þykja skara fram úr.
DJ Yamaho og DJ Manny sjá um að halda uppi stuðinu á dansgólfinu.
Samtökin ´78 mæla með að gestir kíki við í Partýbúðina og/eða Toys for Us til þess að fá hugmyndir eða efniðvið í búningana.
Almennt miðaverð er kr. 1.500,-
Félagsmenn Samtakanna ´78 fá miðann á kr. 1.000 gegn framvísun félagsskírteina.
Forsala miða á ballið fer fram í Samtökunum ´78 frá mánudeginum 27. október. Fyrstu 30 miðarnir verða seldir á sérstöku afmælisverði fyrir félagsmenn eða kr. 500. Öllum miðum seldum í forsölu fylgir jafnframt 2/1 tilboð á kaffihúsi Samtakanna ´78 í Regnbogasal.
* á meðan birgðir endast