Skip to main content
Fréttir

Mannréttindahátíðin Glæstar Vonir

By 25. september, 2013No Comments

GLÆSTAR VONIR VAKNA!
MANNVIRÐING – MANNRÉTTINDI – MANNGÆSKA

Allt of margar og háværar raddir fá óáreittar að básúna út skilaboð haturs og lítillækkunar, dulbúin í klístraðar umbúðir kærleika. Veita þarf þeim röddum sterkt mótvægi innblásið af sannri mannvirðingu og manngæsku. Hinsegin fólk hefur í áraraðir barist fyrir sjálfsögðum mannréttindum sínum og berst víða enn.

Samtökin ´78 vilja minna alla á mikilvægi sannrar mannvirðingar, manngæsku og mannréttinda. Með það að leiðarljósi blásum við til hátíðar næstkomandi laugardag í Þróttaraheimilinu, Engjavegi 7, 104 Reykjavík. Hátíðin hefst kl: 17:00 og stendur í u.þ.b. klukkustund.

Meðal þess sem á dagskrá verður:
Sigurður Hólm Gunnarsson frá Siðmennt,
Sr. Sigríður Guðmarsdóttur sóknarprestur í Guðríðarkirkju
og félagar úr Samtökunum ´78 flytja erindi.
Tónlistaratriði
Kærleiksknúsið 2013

Hátíðarstýra verður Anna Pála Sverrisdóttir, formaður Samtakanna ´78.

Við hvetjum alla til að mæta snemma, koma með strætó eða passa upp á að leggja löglega, því það verður einhver uppákoma í Laugardalshöll á sama tíma.

Leave a Reply